Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 5
Dagbók bæjarstjóra, júlílok og ágústbyrjun
Vinnuvikurnar hafa verið brotakenndar síðan síðasta dagbókarfærsla var skrifuð, en nú er takturinn kominn á rétt ról. Sumarið í Ísafjarðarbæ er stútfullt af áhugaverðum útivistartækifærum, en þegar því sleppir er dagskrá bæjarstjóra ansi fjölbreytt.
Útivist
Hlaupahátíðin fór fram að venju þriðju helgina í júlí. Ég hljóp 15 km Óshlíðarhlaup og var bara ágætlega ánægður með árangurinn, en einkum þó útivistargleðina og veðrið sem lék við þátttakendur. Óshlíðahlaupið var fyrst hlaupið 1993.

Um kvöldið var mér boðið að vera viðstaddur óformlega opnun Bryggjusaunu á olíumúlanum, en þetta verkefni hefur fengið verðskuldaða athygli á samfélagsmiðlum síðan. Hún bætir enn í vaxandi gufumenningu hér um slóðir.

Daginn eftir fór ég í óbyggðagöngu með systursyni mínum í Hornstrandafriðlandinu sem heyrir undir Ísafjarðarbæ. Sú ferð er ekki í frásögur færandi hér á þessum síðum, en á leiðinni skoðuðum við nýuppsett minnismerkið um strand Goðafoss í nóvember árið 1916. Heimafólk vann frækilegt afrek við að bjarga farþegum og áhöfn, 58 manns, og koma þeim í skjól á Látrum í Aðalvík. Minnisvarðinn er gerður úr minjum úr flaki Goðafoss og reistur af Eimskip sumarið 2026 í tilefni þess að 110 ár eru liðin frá strandinu.


Framkvæmdir
Það ku vera vinsælt orðatiltæki í Kanada að tala um tvær árstíðir, vetur og framkvæmdir, og það á ágætlega við hér einnig. Uppdæling á sandi hefur haldið áfram og ég fór niður á Suðurtanga til að skoða stöðu mála. Gert var verkfræðilegt mat á stöðu uppdælingarinnar og hversu mikið pláss væri fyrir sand og kom í ljós að það stendur sirka á endum að til þess að ná heppilegri landhæð til að varna sjávarflóðum með hækkandi sjávarstöðu, þyrfti afgangurinn af því efni sem dæla þarf upp að fara á Suðurtangann. Álfsfellið hefur því dælt upp á Suðurtangann, en svo þarf að moka efninu til og láta það setjast. Miklar framkvæmdir eru eftir, til skemmri tíma að hefta sandfok, en til lengri tíma við færslu gatna, tilfærslu efnis, frágang og fleira.


Úr minnisblaðinu um stöðu uppdælingar.
Ég kíkti einnig til Lauga—Sigurlaugs Baldurssonar—sem var á dögunum að byrja að hífa krosslímdar timbureiningar á grunn Sindragötu 4b. Útgáfa framkvæmdaleyfisins tafðist vegna kærumála og því er gott að sjá húsið byrja að rísa. Það er brýn þörf fyrir þetta húsnæði.

Talandi um húsnæði, þá sendi ég einnig erindi til húsfélaganna á Hlíf, íbúðum eldri borgara, um að flýta vinnu við að afgreiða eignaskiptayfirlýsingar fyrir húsið. Á því hefur nú strandað það verkefni að selja fjórðu hæðina á Hlíf I. Þar var áður félagsstarf, en tækifæri eru til að innrétta þar 2-4 íbúðir.Einnig leit ég inn í Grunnskólann á Ísafirði, en þar er verið að laga flísalögnina í tengibyggingunni.

Í Silfurgötu og Sundstræti voru fyrr í sumar framkvæmdir á vegum Orkubús Vestfjarða. Samkomulag var um að Ísafjarðarbær sæi um að ganga frá, en verktakar hafa verið uppteknir, meðal annars við að undirbúa kennslustofur við Eyrarskjól, og því hefur verkið tafist. Þetta verður klárað í mánuðinum.

Hafnir Ísafjarðarbæjar hafa verið að bæta svokölluðum fingrum á skútuhöfnina við Pollinn, málað og bætt við bekkjum. Þá hafa sölubásar verið að stinga upp kollinum. Þarna er nú komið mjög skemmtilegt svæði, sem verður enn skemmtilegra þegar þjónustuhús fyrir skútufólk rís. Hafnarstjórn tók hugmyndir um það fyrir á síðasta fundi sínum, vildi setja mark sitt á útkomuna og verður málið undirbúið í haust til byggingar næsta vor og sumar.

Gleði á Ísafirði og Súgandafirði
Ég var mikið í Súgandafirði í lok vikunnar. Act Alone var opnuð á fimmtudag á Suðureyri með fjölbreyttri dagskrá, fiskiveislu og uppistandi. Á föstudag var Gullkistuhátíð á Suðureyri þar sem fyrirtæki voru með opið hús og margt var gert til gamans. Ég var með opna bæjarstjóraskrifstofu í Sunnuhlíð, félagsmiðstöð eldri borgara sem var vel sótt, og fékk ég ýmsar gagnlegar ábendingar og hugmyndir. Útlit og almenningssamgöngur voru meðal þess sem brann á fólki.


Seinna um daginn var gleðiganga á Ísafirði. Regnbogafáninn hefur verið við hún fyrir utan fundarsal bæjarstjórnar í vikunni.

Snemma morguninn eftir var ég svo kominn í víkingaskálann í botni Súgandafjarðar, en þar var haldinn vestfirski fornminjadagurinn. Ég flutti þar erindi um notkun kúffisks sem beitu í Ísafjarðardjúpi og byggði erindið á mestu á grein sem ég skrifaði fyrr í ár upp úr bók Árna Gíslasonar, Gullkistan. Erindið setti ég í samhengi við það hversu flókið viðfangsefni það er fyrir stjórnvöld að stýra auðlindanýtingu þegar harmleikur almenninganna er annars vegar.

Þaðan fór ég svo yfir á ættarmót sem haldið var af afkomendum Jóhönnu Jakobsdóttur og Kristjáns Sigmundar Guðjónssonar. Ættarmótið var fjölmennt og var einn þáttur í því ræðuhöld og afhending á bekk þar sem þau hjón bjuggu um áratugaskeið með níu börnum og ýmsu öðru heimilisfólki. Bekkurinn er innan við Urðarvegsblokkirnar, en þetta svæði tók náttúrulega miklum breytingum þegar ofanflóðavarnir voru byggðar þarna fyrir rúmum áratug.

Góðar heimsóknir
Ég fæ sem bæjarstjóri margar góðar heimsóknir sem ég er misnatinn við að taka myndir af. Það var þó sérstaklega ánægjulegt þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kom í heimsókn, en erindi hennar hingað vestur var að heimsækja undirstofnanir ráðuneytisins.

Þá kom í heimsókn Sigrún Davíðsdóttir fyrrum fjölmiðlakona og við ræddum hugmyndir hennar um útilistaverk.

Í komandi viku fara reglulegir fundir að byrja aftur, til dæmis bæjarráð sem verður á fimmtudag en fréttnæmastur verður þó án efa sólmyrkvinn.