Auglýst eftir tilnefningum um íþróttamann Ísafjarðarbæjar 2026

Ísafjarðarbær auglýsir eftir tilnefningum um íþróttamann ársins 2026, samkvæmt reglum um val á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar.

Opið er fyrir tilnefningar til og með 7. desember. Allar tillögur skulu rökstuddar og tilnefndir íþróttamenn skulu keppa fyrir hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu og hafa náð 18 ára aldri á keppnisárinu.

Tilnefningar eru sendar inn í gegnum tilnefningarform.