Bæjarráð leggur til framlengingu á fresti vegna gatnagerðargjalda

Á 1389. fundi bæjarráð Ísafjarðarbæjar, þann 19. nóvember 2026, var lagt til við bæjarstjórn að frestur vegna tímabundinnar niðurfellingar gatnagerðargjalda á tilteknum íbúðarhúsalóðum verði framlengdur til 31. október 2027. Bæjarstjórn mun taka afstöðu til tillögunnar á fundi sínum þann 3. desember 2026.

Núgildandi frestur til lokaúttektar eignanna er 31. desember 2026 svo að niðurfellingarheimild gatnagerðargjalda gildi. Úrræðið nær til tiltekinna íbúðarhúsalóða við þegar fullgerðar götur og var sett á til að hvetja til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis á þeim svæðum þar sem sveitarfélagið þurfti ekki að leggja í nýjan kostnað vegna gatnagerðar.

Ástæða tillögunnar um framlengingu er að framkvæmdir á nokkrum þeirra lóða sem falla undir úrræðið eru enn í gangi og fyrirséð er að ekki verði unnt að ljúka þeim öllum fyrir núverandi lokafrest. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum margra eigna ljúki á næstu mánuðum. Mikilvægt er að húsbyggjendur ljúki framkvæmdum og fái lokaúttekt á eignum sínum fyrir 31. október 2027, að öðrum kosti falli niðurfellingarheimild gatnagerðargjalda niður.

Verði tillaga bæjarráðs samþykkt í bæjarstjórn þurfa framkvæmdir að vera hafnar á grundvelli gildandi byggingarleyfis og lokaúttekt að fara fram eigi síðar en 31. október 2027 til að niðurfelling gatnagerðargjaldsins haldi gildi. Ef lokaúttekt fer ekki fram innan frestsins kemur gjaldið til greiðslu.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar tekur endanlega afstöðu til tillögunnar á fundi sínum 3. desember 2026, og í kjölfarið mun hver málsaðili fá sent erindi vegna sinnar eignar.