Ísafjarðarbær tekur aftur þátt í Arctic Mayors’ Forum
06.11.2026
Fréttir
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að sveitarfélagið taki aftur upp þátttöku í Arctic Mayors’ Forum, samstarfsvettvangi bæjarstjóra á norðurslóðum. Tillagan var samþykkt á 578. fundi bæjarstjórnar.
Ísafjarðarbær tók þátt í Arctic Mayors’ Forum árið 2019, þegar samtökin voru stofnuð. Þátttaka sveitarfélagsins lagðist síðar af, meðal annars í kjölfar tíðra bæjarstjóraskipta og heimsfaraldursins.
Arctic Mayors’ Forum var formlega stofnað árið 2019 og hefur það að markmiði að tryggja sveitarstjórnum og kjörnum fulltrúum á norðurslóðum rödd í stefnumótun um málefni svæðisins. 19 sveitarfélög eru skráð á vefsíðu Artic Mayor, m.a. Akureyri, Tromsø, Bodø, Rovaniemi, Umeå, Luleå, Fairbanks, Sermersooq og Þórshöfn í Færeyjum.
„Ísafjarðarbær á að taka skýra stöðu í umræðu um norðurslóðir og láta rödd sína heyrast, jafnt í samstarfi við aðra og á eigin forsendum.“ segir Gylfi Ólafsson bæjarstjóri.