Fimm ný söguskilti

Uppsetningu fimm nýrra söguskilta á Eyrinni og við Jónsgarð á Ísafirði er nú lokið. Skiltin eru hluti af verkefninu Söguskilti í Ísafjarðarbæ  sem hefur það markmið að gera sögu sveitarfélagsins aðgengilegri fyrir íbúa og gesti. Verkefnið var fyrst kynnt fyrir menningarmálanefnd árið 2022 og var unnið í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga voru sett upp fimm skilti og nú í haust fimm í viðbót en lesa má um skiltin á síðu Ísafjarðarbæjar um Söguskilti | Ísafjarðarbær

Á skiltunum er fjallað um sögu fimm svæða á Ísafirði: Jónsgarður, Skutulsfjarðareyri, Norðurtangi, Tangagata og Dokkan og Bakkarnir. Myndefni er úr safni Ljósmyndasafnsins á Ísafirði og textarnir unnir af Jónu Símoníu Bjarnadóttur, forstöðumanni Byggðasafns Vestfjarða.

Ísafjarðarbær hlaut styrk fyrir verkefninu úr Styrktarsjóði EBÍ 2025 sem gerir sveitarfélaginu kleift að efla miðlun menningararfs á svæðinu. Með söguskiltunum skapast ný tækifæri fyrir íbúa, skóla og gesti til að kynnast sögu sveitarfélagsins á þeim stöðum þar sem hún átti sér stað.

 Ísafjarðarbær þakkar Styrktarsjóði EBÍ fyrir stuðninginn.