Fjárhagsáætlun 2027 samþykkt: Sterkur rekstur, lækkandi skuldahlutfall og aukin þjónusta
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Áætlunin sýnir sterka rekstrarstöðu, lækkandi skuldahlutfall og gott sjóðstreymi, samhliða því sem þjónusta við íbúa er efld og ráðist verður í umfangsmiklar fjárfestingar og viðhaldsverkefni.
Gert er ráð fyrir 486 milljóna króna afgangi af rekstri A-hluta og 707 milljóna króna afgangi af rekstri A- og B-hluta saman. Veltufé frá rekstri samstæðunnar verður um 1,5 milljarðar króna, eða 15,3% af tekjum, og handbært fé frá rekstri um 1,4 milljarðar króna.
Fjárhagsstaðan styrkist jafnframt áfram. Skuldahlutfall A- og B-hluta lækkar úr 86,8% samkvæmt útkomuspá ársins 2026 í 83,6% árið 2027. Handbært fé A-hluta er áætlað um 753 milljónir króna í árslok, samanborið við 369 milljónir króna samkvæmt útkomuspá 2026.
Gjaldskrár hækka hóflega
Við gerð fjárhagsáætlunarinnar var lögð áhersla á að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf. Gjaldskrár leikskóla hækka ekki og nýtist það barnafjölskyldum beint. Gjaldskrár skóla- og íþróttastarfsemi, matarþjónustu velferðarsviðs, vatnsveitu og fráveitu verða einnig óbreyttar. Fasteignaskattshlutfall á íbúðarhúsnæði verður áfram 0,48%. Tekjuviðmið vegna afsláttar af fasteignagjöldum aldraðra og öryrkja hækka, en afsláttarhlutföll haldast óbreytt.
Aukin þjónusta við börn og ungmenni
Árið 2027 verður aukin áhersla lögð á snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur. Þjónustudögum skólasálfræðinga verður fjölgað með það að markmiði að stytta biðlista og bæta aðgengi að ráðgjöf og greiningum. Stoðþjónusta grunnskólanna verður efld og unnið verður að innleiðingu endurskoðaðrar menntastefnu Ísafjarðarbæjar.
Félagsmiðstöðvastarf verður styrkt með aukningu stöðugilda og aðstaða ungmenna bætt. Starfið verður endurskoðað og stefnt að rýmri opnunartíma þar sem það er mögulegt. Sérstök áhersla verður áfram lögð á starf Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar.
Til fræðslu- og uppeldismála verður varið um 3,3 milljörðum króna og um 885 milljónum króna til íþrótta- og æskulýðsmála.
Menning, íþróttir og félagsstarf eflt
Samþykktur hefur verð þríhliða þjónustu- og styrktarsamningur ríkisins, Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins um eflingu menningarstarfs. Framlag Ísafjarðarbæjar vegna samningsins er áætlað 30 milljónir króna til móts við 30 milljónir króna frá ríkinu árið 2027. Einnig verður unnið að nýrri aðgerðaáætlun menningarstefnu, áframhaldandi endurnýjun Safnahússins og viðhaldi útilistaverka.
Áfram verður unnið að uppbyggingu skíðasvæðisins í Tungudal, meðal annars með 66 milljóna króna fjárfestingu í snjóframleiðslu. Þá verður búnaður í líkamsræktaraðstöðu sveitarfélagsins endurnýjaður og opnunartími sundlauga á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri rýmkaður.
Öflugra umhverfisstarf og bættir innviðir
Umhverfis- og eignasvið verður styrkt með auknu stöðugildi deildarstjóra til að mæta auknu umfangi framkvæmda, skipulagsvinnu, viðhalds og umhverfisverkefna. Áhersla verður lögð á hreint og snyrtilegt umhverfi í öllum byggðarkjörnum, viðhald gatna og gangstétta og bætt umferðaröryggi. Merki umhverfisátaksins eiga að verða sýnileg strax næsta sumar.
Alls er gert ráð fyrir 60 milljónum króna til viðhalds gatna og gangstétta. Meðal verkefna eru klæðning Skógarbrautar í sumarhúsabyggð, malbikun Hlíðarvegar á Suðureyri og endurnýjun hellulagnar á Silfurtorgi. Einnig verður unnin ný umferðaröryggisáætlun og biðskýli sett upp eða endurnýjuð á Flateyri, Suðureyri, Þingeyri og Ísafirði.
Umfangsmiklar fjárfestingar og viðhald
Fjárfestingar A- og B-hluta á árinu 2027 eru áætlaðar 1.169 milljónir króna. Meðal stærstu verkefna eru ný slökkvistöð, áframhaldandi ofanflóðavarnir á Flateyri, framkvæmdir á skíðasvæðinu, endurbætur á lóð Sólborgar, hönnun verkmenntahúss Menntaskólans á Ísafirði, og uppbygging hafnarmannvirkja.
Á hafnarsvæðunum verður meðal annars unnið að nýju móttökuhúsi fyrir farþega, öruggari gönguleiðum, endurnýjun Sundabakka 3, frágangi gámaplans og endurnýjun innri hafnargarðs á Þingeyri.
Til viðhalds fasteigna samstæðunnar verður varið rúmlega 490 milljónum króna, þar af er viðhald A hluta sé 337 m.kr. og viðhald eignasjóðs 185 m.kr. Meðal viðhaldsverkefna eignasjóðs sé svo m.a. tengibyggingu Grunnskólans á Ísafirði, endurnýjun sandsía og kerfisbúnaðar við sundlaugina á Flateyri og gluggaskipti í Sundhöll Ísafjarðar.
Ábyrg fjármál og metnaðarfull framtíðarsýn
Fjárhagsáætlunin byggir á fjármálastefnu sem bæjarstjórn samþykkti samhljóða haustið 2026. Flest markmið stefnunnar nást samkvæmt áætlun ársins 2027, meðal annars um rekstrarjöfnuð, veltufé frá rekstri, skuldahlutfall og handbært fé.
Áætlunin sameinar þannig ábyrgan rekstur, bætta þjónustu og áframhaldandi uppbyggingu í öllum byggðarkjörnum Ísafjarðarbæjar. Sterkt sjóðstreymi og lægra skuldahlutfall skapa traustari grunn fyrir þjónustu og fjárfestingar næstu ára.