Fjármálastefna samþykkt

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti einróma á 574. fundi sínum þann 3. september 2026 nýja fjármálastefnu sveitarfélagsins fyrir árin 2027-2031. Stefnan markar ramma um fjármálastjórn sveitarfélagsins á næstu árum og er ætlað að stuðla að ábyrgri og sjálfbærri rekstrarstefnu. Tillagan var áður til umfjöllunar í bæjarráði og hlaut þar einnig jákvæða afgreiðslu áður en hún var lögð fyrir bæjarstjórn.

Að sögn Gylfa Ólafssonar bæjarstjóra felur stefnan í sér mikilvæga sameiginlega sýn bæjarstjórnar á ábyrga fjármálastjórn út kjörtímabilið.

„Fjármálastefnan sem samþykkt var einróma sýnir að bæjarstjórn er samtaka í því að sýna varfærni og ábyrgð í fjármálum út þetta kjörtímabil. Það er auðvitað skemmtilegra að geta gert allt fyrir alla strax, en til lengri tíma tryggja reglur af þessu tagi betri fjárhagslega framtíð sveitarfélagsins og hjálpa til við að taka erfiðar ákvarðanir. Bæjarstjórn setti sér svipaðar reglur árið 2022 og það var góð reynsla af því. Stjórnvöld hafa verið að undirbúa að setja ákvæði um fjármálastefnu í lög, og við erum því skrefinu á undan.“ 

 

Með samþykkt stefnunnar staðfestir bæjarstjórn vilja sinn til að byggja ákvarðanatöku á skýrum fjárhagslegum viðmiðum, þannig að sveitarfélagið geti mætt framtíðarverkefnum af ábyrgð og tryggt traustan fjárhagslegan grunn til lengri tíma. Nánari upplýsingar um afgreiðslu málsins má finna í fundargerð 574. fundar bæjarstjórnar sem haldinn var 3. september 2026.  

Fjármálastefna 2027-2031