Framkvæmdir og fjárfestingar
Framkvæmdir og fjárfestingar Ísafjarðarbæjar námu samtals um 842,4 m.kr. fyrstu níu mánuði ársins 2026. Gildandi fjárheimildir ársins, að teknu tilliti til samþykktra viðauka, nema 1.330 m.kr. og hafa því um 63% fjárheimilda ársins verið nýttar í lok september.
Framkvæmdastaðan er mismunandi eftir verkefnum. Í A-hluta hafa verið bókaðar framkvæmdir fyrir um 307,7 m.kr. af 630 m.kr. fjárheimild, en í B-hluta um 534,7 m.kr. af 700 m.kr.
Umfangsmiklar framkvæmdir við hafnarmannvirki
Stærstur hluti framkvæmda ársins er hjá Hafnarsjóði. Þar hafa verið bókaðar framkvæmdir fyrir tæplega 475 m.kr. í lok september, eða um 87% af 545 m.kr. fjárheimild ársins.
Stærstu framkvæmdirnar hafa verið við Sundabakka og gámaplan, þar sem bókaðar hafa verið um 135 m.kr., auk vinnu við móttökuhús á Sundabakka og göngustíg á Sundahafnarsvæðinu. Einnig hefur verið unnið að stækkun Skútuhafnar og flotbryggju, þjónustuhúsi við Skútuhöfn og endurbótum á flotbryggju á Suðureyri.
Meðal annarra verkefna Hafnarsjóðs á árinu eru rútustæði við Hrafnatanga, göngustígur að Neðstakaupstað, trébryggja fyrir ferðabáta, dýpkun uppítökudokka og endurnýjun tækja. Nokkur þessara verkefna eru komin vel á veg en önnur halda áfram á síðasta ársfjórðungi.
Gatnagerð og framkvæmdir í þéttbýliskjörnum
Talsvert hefur einnig verið unnið að gatnagerð. Fjárheimild ársins, eftir breytingar, nemur 78 m.kr. og hafa um 71 m.kr. verið bókaðar í lok september, eða um 91% fjárheimildarinnar.
Stærsta einstaka verkefnið var malbikun á Þingeyri, en þar hafa verið bókaðar um 44,5 m.kr. Einnig var unnið að malbikun gatna á Ísafirði og Suðureyri og gerð gangstétta á Ísafirði. Önnur verkefni, meðal annars tengd nýjum hverfum á Ísafirði og áningarstöðum, voru skemmra komin í lok september
Framkvæmdir við skóla og leikskóla
Nokkrar framkvæmdir hafa staðið yfir við leikskóla og skólahúsnæði. Unnið hefur verið að lóð leikskólans Sólborgar, þar sem um 28,3 m.kr. hafa verið bókaðar í lok september. Þá hefur verið unnið að einingarhúsum við leikskólana Sólborg og Eyrarskjól auk skrifstofugáms við Eyrarskjól.
Önnur verkefni við skólahúsnæði eru ýmist í undirbúningi eða hafa verið frestað. Þar á meðal eru verkefni tengd loftræstingu og varmadælum.
Bæjarskrifstofur og slökkvistöð
Töluverðar framkvæmdir hafa farið fram í bæjarskrifstofunum á Ísafirði. Þar hefur meðal annars verið unnið að endurnýjun kerfislofts og brunakerfis og breytingumá 4. hæð, auk tengdra framkvæmda á 2. og 4. hæð. Þá voru þakskipti á stjórnsýsluhúsinu boðin út í september og gert ráð fyrir framkvæmd þeirra á síðasta ársfjórðungi ársins.
Undirbúningur vegna nýrrar slökkvistöðvar er einnig áfram í vinnslu. Bókaður brúttókostnaður verkefnisins nam um 33,5 m.kr. í lok september en á móti hafa komið styrkir úr Fiskeldissjóði. Fjárheimild til byggingar stöðvarinnar er 300 m.kr. en áætlaður styrkur úr Fiskeldissjóði nemur 100 m.kr
Íþróttamannvirki og skíðasvæði
Nokkur verkefni við íþróttamannvirki eru ýmist komin til framkvæmda eða í undirbúningi. Endurnýjun sundlaugarkerfis í Sundhöllinni á Ísafirði er lokið og var verkefnið komið nærri fjárheimild í lok september.
Undirbúningur vegna nýrrar lýsingar á aðalvellinum á Torfnesi var í innkaupaferli. Þá eru framkvæmdir vegna snjóframleiðslu á skíðasvæðinu hafnar að hluta og önnur verkefni við Torfnes og íþróttamannvirki ýmist í vinnslu eða bið
Tækjakaup hafa einnig verið nokkur á árinu. Keypt hafa verið meðal annars snjósleði og sexhjól og nýr snjótroðari var væntanlegur í nóvember.
Ofanflóðavarnir og fráveituframkvæmdir
Áfram hefur verið unnið að ofanflóðavörnum á Flateyri. Um 63,8 m.kr. hafa verið bókaðar vegna verkefnisins í lok september. Framkvæmdirnar halda áfram og samkvæmt stöðumati er ljóst að fjárþörf vegna verkefnisins á árinu verður meiri en gert hafði verið ráð fyrir í gildandi fjárheimild.
Fráveituframkvæmdir hafa einnig verið umfangsmiklar, einkum á Þingeyri, þar sem tæplega 44 m.kr. hafa verið bókaðar í lok september. Einnig hefur verið unnið að verkefnum á Suðureyri og vegna LIVE/IceWater verkefnisins. Samtals höfðu um 53,6 m.kr. verið bókaðar í fráveituframkvæmdir.
Nokkrar framkvæmdir færast á síðustu mánuði ársins
Þótt framkvæmdir fyrir rúmar 842 m.kr. hafi verið bókaðar fyrstu níu mánuði ársins eru nokkur stór verkefni enn á undirbúningsstigi eða aðeins komin af stað. Þar má meðal annars nefna lýsingu á aðalvelli Torfness, hluta framkvæmda við skóla- og leikskólahúsnæði, snjóframleiðslu á skíðasvæðinu, slökkvistöð og ýmis verkefni við hafnarmannvirki.
Á síðustu mánuðum ársins verður jafnframt farið yfir stöðu verkefna og fjárheimildir þeirra, meðal annars þar sem kostnaður hefur orðið meiri en áætlað var eða framkvæmdir hafa færst til innan ársins. Markmiðið er að fjárheimildir endurspegli sem best raunverulega framkvæmdastöðu og áætlaðan kostnað til ársloka.