Fyrsta skóflustungan að nýju móttökuhúsi
Fyrsta skóflustungan að nýju móttökuhúsi fyrir farþega skemmtiferðaskipa við Sundabakka á Ísafirði var tekin föstudaginn 9. október. Húsið verður um 314 fermetrar að stærð og mun bæta aðstöðu fyrir bæði farþega og þjónustuaðila á hafnarsvæðinu.
Í byggingunni verður meðal annars biðsalur, upplýsingamiðstöð og salerni, auk aðstöðu fyrir tollgæslu, lögreglu, ferðaþjónustuaðila og starfsfólk hafnarinnar. Húsið er hannað af M11 arkitektum í samstarfi við verkfræðistofuna Feril.
Framkvæmdir eru hafnar og er stefnt að því að byggingin verði tilbúin að utan vorið 2027. Lokafrágangur er síðan áætlaður síðar sama ár.
Móttökuhúsið er hluti af áframhaldandi uppbyggingu hafnarsvæðisins við Sundabakka. Á undanförnum árum hefur hafnarkanturinn verið lengdur, svæðið dýpkað fyrir stærri skemmtiferðaskip og aðstaða fyrir rútur og aðra þjónustu verið bætt.
Það var Hilmar Kristjánsson Lyngmo, hafnarstjóri, sem tók fyrstu skóflustunguna og markaði þar með upphaf framkvæmda. Ljósmynd tók Kristján Andri Guðjónsson.