Gangur ljóssins eftir Ástu Guðrúnu Óskarsdóttur sigraði í samkeppni um útilistaverk á Ísafirði
Tillagan Gangur ljóssins eftir myndlistarkonuna Ástu Guðrúnu Óskarsdóttur varð hlutskörpust í opinni samkeppni um nýtt útilistaverk á Ísafirði, sem Hafnir Ísafjarðarbæjar efndu til í samstarfi við Vestfjarðastofu og Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Alls bárust 25 tillögur í samkeppnina.
Leitað var að hugmynd að útilistaverki á miðsvæði Ísafjarðar, í göngufæri frá höfninni. Verkið átti að vera eftirminnilegt kennileiti, aðdráttarafl fyrir gesti og myndastopp sem fangaði staðaranda Ísafjarðarbæjar.
Ljós, landslag og árstíðir
Gangur ljóssins er opið skúlptúrverk úr cortenstáli sem breytist með birtu, veðri og árstíðum. Form þess rammar inn fjörðinn, fjöllin og himininn frá ólíkum sjónarhornum og gerir landslagið að lifandi hluta verksins. Gestir geta gengið að því, í kringum það og horft í gegnum það.
Innbyggð lýsing fylgir árlegri hringrás birtunnar. Ljósboginn lengist á vorin og nær hámarki við sumarsólstöður, en dregst saman þegar dagarnir styttast. Verkið vísar jafnframt til þeirrar hefðar Ísfirðinga að fagna endurkomu sólar eftir dimmasta tíma ársins með sólarkaffi.
Verkið verður þannig bæði kennileiti og vettvangur til að upplifa samspil náttúru, ljóss og tíma. Það getur einnig nýst til fræðslu fyrir ferðamenn, skólahópa og aðra sem vilja kynnast sérkennum staðarins.
25 tillögur bárust
Hugmyndin að samkeppninni kviknaði í tengslum við þróun viðburðasjóðs Hafna Ísafjarðarbæjar. Verkefnið var tekið til skoðunar hjá Vestfjarðastofu og í framhaldinu var ákveðið að efna til opinnar samkeppni í einu þrepi, samkvæmt samkeppnisreglum SÍM.
Samkeppnin var auglýst í apríl 2026 og skilafrestur tillagna rann út 15. september. Fimm manna dómnefnd, skipuð þremur fulltrúum Hafna Ísafjarðarbæjar og tveimur fulltrúum SÍM, mat tillögurnar og valdi þá hugmynd sem best uppfyllti markmið og áherslur samkeppninnar.
Dómnefnd skipuðu Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Catherine Chambers, Gylfi Ólafsson, Hlynur Hallsson og Pétur Guðmundsson. Trúnaðarmaður samkeppninnar var Ingibjörg Gunnlaugsdóttir hjá SÍM og verkefnastjóri Anna Sigríður Ólafsdóttir hjá Vestfjarðastofu.
Verkið verður reist árið 2027 og á eftir að taka ákvörðun um endanlega staðsetningu þess.
Um listamanninn
Ásta Guðrún Óskarsdóttir er myndlistarmaður búsett á höfuðborgarsvæðinu en á einnig annað heimili í Önundarfirði. Hún stundaði nám í listrænni ljósmyndun við Ljósmyndaskólann í Reykjavík og vinnur þvert á miðla, meðal annars með ljósmyndun, klippimyndum og skúlptúr.
Ásta hefur tekið þátt í sýningum hér heima og erlendis. Í listsköpun sinni kannar hún mörkin milli hins tvívíða og þrívíða og sækir innblástur í náttúru og sögu. Í Gangi ljóssins fléttast ljós og tími saman og skapa síbreytilega ásýnd sem mótar upplifun áhorfandans.

Umsögn dómnefndar
Tillagan Gangur ljóssins er listrænt sterk, fagurlega útfærð og faglega unnin. Hún fellur vel að skilmálum samkeppninnar og uppfyllir þær áherslur sem Hafnir Ísafjarðarbæjar lögðu til grundvallar. Verkið er einfalt og fallegt en býr jafnframt yfir sterkri tengingu við sólarganginn og þau náttúrufyrirbæri sem móta líf og umhverfi á Ísafirði. Með skírskotun til náttúru og menningar staðarins vekur það forvitni og býður upp á fjölbreyttar túlkanir.
Gangur ljóssins hefur áhugaverða tengingu við vita og siglingarljós og getur þannig orðið bæði kennileiti og aðdráttarafl. Sérstaða þess felst meðal annars í því að það breytist með árstíðunum og dregur fram einstakar breytingar sem verða á birtu og sólargangi undir bröttum fjöllum á norðlægum breiddargráðum. Verkið getur því ekki aðeins vakið athygli á sérkennum staðarins heldur einnig nýst til fræðslu fyrir ferðamenn, skólahópa og aðra sem vilja kynnast samspili landslags og birtu. Jafnframt má tengja það hátíðum og viðburðum á Ísafirði.
Verkið er sterkt en jafnframt fínlegt, endingargott og sveigjanlegt hvað staðsetningu varðar. Framkvæmdalýsingin er trúverðug og byggir ekki á utanaðkomandi óvissuþáttum. Verkið mun vekja athygli bæjarbúa og gesta og beina sjónum að listamanninum, Ísafirði og þeim stað sem það mun prýða. Að mati dómnefndar stenst tillagan best þær kröfur sem gerðar voru í samkeppninni.
