Gjaldfrjáls hressing fyrir nemendur í yngstu bekkjum

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að frá og með árinu 2027 verði nemendum í 1.-4. bekk Grunnskólanum á Ísafirði og Grunnskólanum á Suðureyri boðin gjaldfrjáls holl hressing í nestistímanum.

Með ákvörðuninni verður nemendum boðið upp á næringarríka millimáltíð, svo sem ávexti eða aðra sambærilega hressingu, í samræmi við það fyrirkomulag sem þegar er viðhaft í öðrum grunnskólum sveitarfélagsins.

Markmið breytingarinnar er að stuðla að heilbrigðum lífsvenjum og tryggja nemendum aðgang að hollri hressingu yfir skóladaginn.

Fréttin var uppfærð 14.10.2026