Gönguskíðaveturinn farinn af stað

Sunnudagurinn var fyrsti formlegi opnunardagurinn á gönguskíðasvæðinu á Seljalandsdal þennan veturinn. Ágætis spor voru þó komin strax á laugardag og færið hefur verið gott miðað við aðstæður. Snjór er enn af skornum skammti á svæðinu og því er farið sparlega í að troða brautina.

Upplýsingar um færi

Veðurspáin næstu daga lítur ágætlega út en aðstæður geta breyst hratt. Skíðafólk er því hvatt til að fylgjast með nýjustu upplýsingum um spor, færi og aðstæður á Facebook-síðu Skíðasvæðisins.

Vefsíða skíðasvæðisins Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar – Dalirnir Tveir – best geymda leyndamálið verður uppfærð fljótlega og þar er einnig hægt að nálgast upplýsingar um svæðin, gjaldskrá og fyrir óvana Skilgreining á færi.

„Það er ekki mikill snjór ennþá en færið er bara ansi gott miðað við aðstæður. Við förum því sparlega í troðsluna og reynum að láta snjóinn endast,“ segir Ragnar Högni, forstöðumaður skíðasvæðisins.

Árskort gilda á báðum skíðasvæðum

Árskort á skíðasvæðin má kaupa rafrænt á kort.isafjordur.is.  Kortin gilda bæði á gönguskíðasvæðinu á Seljalandsdal og alpasvæðinu í Tungudal og því er hægt að nýta sama árskortið á báðum svæðum þegar aðstæður og opnun leyfa.

Góða skemmtun í sporinu!