Hagstæðari rekstrarniðurstaða hjá Ísafjarðarbæ

Níu mánaða uppgjör Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2026 sýnir hagstæðari rekstrarniðurstöðu en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun með viðaukum. Rekstrarafgangur A- og B-hluta nam 965 m.kr., en áætlun tímabilsins gerði ráð fyrir 695 m.kr. afgangi. Afkoman er því 270 m.kr. betri en áætlað var.

Rekstrartekjur námu 7.294 m.kr. og voru 114 m.kr., eða 1,6%, umfram áætlun. Rekstrargjöld námu 6.055 m.kr. og voru 187 m.kr., eða 3,0%, undir áætlun. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði nam þannig 1.240 m.kr. og var 301 m.kr. hagstæðari en áætlun gerði ráð fyrir.

Útsvarstekjur námu 2.767 m.kr. og voru um 31 m.kr. undir áætlun. Á móti voru framlög Jöfnunarsjóðs og fasteignaskattar lítillega umfram áætlun, auk þess sem þjónustutekjur og aðrar tekjur voru hærri en áætlað hafði verið.

Rekstrarafgangur A-hluta nam 553 m.kr., en gert hafði verið ráð fyrir 333 m.kr. afgangi. Afkoma A-hluta var því um 220 m.kr. betri en áætlun tímabilsins gerði ráð fyrir.

Uppgjör þriðja ársfjórðungs var sent Hagstofu Íslands 11. nóvember 2026.