Jólaljósin tendruð í Ísafjarðarbæ næstu tvær helgar

Ljósin verða tendruð á jólatrjám í Ísafjarðarbæ helgarnar 21.-22. nóvember og 28.-29 nóvember. 

Dagskráin verður með hefðbundnu sniði á hverjum stað – ljúfir jólatónar og jólasveinar sem gleðja bæði börn og fullorðna.

21. nóvember – Flateyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Flateyri klukkan 16:00.
Skólabörn syngja jólalög og jólasveinarnir verða á sínum stað með söng og sprell.
Jólamarkaður verður haldinn í samkomuhúsinu á Flateyri kl. 14:00- 18:00 sama dag. Þar verður hægt að kaupa heitt kakó bæði fyrir og eftir tendrun jólaljósanna.

22. nóvember – Suðureyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Suðureyri klukkan 16:00.
Nemendur í útibúi Tónlistarskóla Ísafjarðar á Suðureyri flytja jólalög.
Kvenfélagið Ársól stendur fyrir kakósölu og jólasveinarnir verða á sínum stað með söng og sprell.

28. nóvember – Ísafjörður
15:30: Kakó- og torgsala 10. bekkjar Grunnskólans á Ísafirði.
15:45 Lúðrasveitin verður með fjöruga tóna, barnakór og nemendur í söngnámi Tónlistarskóla Ísafjarðar flytja ljúfa tóna.
16:00 Ljósin tendruð á jólatrénu á Silfurtorgi og jólasveinarnir verða á sínum stað með söng og sprell.

29. nóvember – Þingeyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Þingeyri klukkan 16:00.
Grunnskólabörn syngja jólalög.
Kirkjukór Þingeyrar syngur hátíðleg lög.
Höfrungur býður upp á kakó og piparkökur.

Íbúar og gestir eru hvattir til að mæta og njóta saman.