Kynning: Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng. Vinnslutillaga - aðalskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar birtir til kynningar, vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, skv. II. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010, fyrir Breiðadalslínu 1 í Dýrafirði, með hliðsjón af auknu afhendingaröryggi á norðanverðum Vestfjörðum, greinargerð með uppdrætti unnin af Verkís ehf., dags. 8. maí 2026. Aðalskipulagsbreytingin er unnin í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í samræmi við 2. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Tilgangur skipulagsgerðarinnar er að skapa svigrúm í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 fyrir lagningu Breiðadalslínu 1 við sunnanverðan Dýrafjörð á kafla frá Dýrafjarðargöngum og vestur fyrir Kjaranstaði að þeim stað sem línan liggur yfir Dýrafjörð. Markmiðið er að styrkja flutningskerfi raforku á Vestfjörðum og auka afhendingaröryggi í kerfinu. Markmiðið er einnig að lágmarka umhverfisáhrif af skipulagsbreytingunni og framkvæmdinni, svo sem af línunni sjálfri, gerð plana og vegslóða og efnistöku í tengslum við framkvæmdina.
Gerð er breyting á sveitarfélagsuppdrætti, þ.e. Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020; Sveitarfélagsuppdráttur – sunnan Djúps, þar sem Breiðadalslína 1 er sýnd sem rafveita í jörð, en breytist í loftlinu á um 4,3 km kafla frá Dýrafjarðargöngum að Dýrafjarðarbrú. Jafnframt breytist lega línunnar á þeim kafla. Breiðadalslína 1 er loftlína þar sem hún liggur yfir Dýrafjörð og að Breiðadal, en ekki fyrirhugaðar breytingar á þeim kafla línunnar. Gerð er breyting á sveitarfélagsuppdrættinum þar sem afmörkuð eru tvö ný efnistökusvæði, þ.e. E38 – Kjaransstaðir – Nautahjalli og E40 – Drangahlíð og á greinargerð aðalskipulagsins, þ.e. köflum 11.2.4 Rafveita, 8.4 Landbúnaður og 8.8 Efnistaka og vinnsla.
Umsagnir og athugasemdir í skipulagsferlinu eru aðgengilegar í gegnum Skipulagsgáttina: skipulagsgatt.is, mál nr.222/2026. Hægt að skila ábendingum við tillögugerðina, rafrænt um skipulagsgáttina eða til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar: skipulag@isafjordur.is til og með 15. nóvember 2026, -þar sem einnig er hægt að fá nánari upplýsingar og leiðbeiningar.
Vinnslutillagan verður einnig aðgengileg á uppdrætti og greinargerð með forsendum breytinga ásamt umhverfismati, á umhverfis- og eignasviði, 4. hæð, Hafnarstræti 1, Ísafirði og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.
Opið hús verður haldið í sal bæjarstjórnar -Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1 á Ísafirði, mánudaginn 9. nóvember 2026 milli kl. 14:00 og 16:00.
Vakin er athygli á því að aðeins er um að ræða vinnslutillögu breytinga á aðalskipulagi en ekki formlega auglýsingu
Vinnslutillöguna má sjá hér.