Malbiksframkvæmdir

Vegagerðin hefur heimilað malbiks- og fræsiframkvæmdir á Ísafirði og í Bolungavík dagana 21.–24. ágúst, að því gefnu að veður leyfi. Vegfarendur mega búast við töfum á meðan framkvæmdir standa yfir.

Föstudagur 21. ágúst – Bolungavík

Unnið verður við malbikun frá gatnamótum Óshlíðargangna við Djúpveg, um Þuríðarbraut og Aðalstræti, að gatnamótum við Höfðatíg. Kaflinn er um 1,8 km að lengd.

Unnið verður við aðra akreinina í einu og umferð hleypt fram hjá vinnusvæðinu með umferðarstýringu.
Vinnutími: kl. 6:30–22.

Laugardagur 22. ágúst – Ísafjörður

Unnið verður við fræsingu á hringtorginu við Skutulsfjarðarbraut og tengingum þess við Pollgötu, Hafnarstræti og Sólgötu.

Umferð verður hleypt fram hjá vinnusvæðinu með umferðarstýringu og má búast við töfum.
Vinnutími: kl. 6–15.

Sunnudagur 23. ágúst – Bolungavík

Malbikun heldur áfram á um 1,8 km kafla frá gatnamótum Óshlíðargangna við Djúpveg, um Þuríðarbraut og Aðalstræti, að gatnamótum við Höfðatíg.

Unnið verður við aðra akreinina í einu og umferð hleypt fram hjá vinnusvæðinu með umferðarstýringu.
Vinnutími: kl. 6:30–22.

Mánudagur 24. ágúst – Ísafjörður

Unnið verður við malbikun á hringtorginu við Skutulsbraut og tengingum þess við Pollgötu, Hafnarstræti og Sólgötu.

Umferð verður hleypt fram hjá vinnusvæðinu með umferðarstýringu og má búast við töfum.
Vinnutími: kl. 6–18.

Sýnum aðgát á vinnusvæði

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna sérstaka aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og starfsfólk og vinnuvélar verða nálægt akstursbrautum.

Ábyrgðarmaður veghaldara er Sigrún Björk Runólfsdóttir s: 7745151 og ábyrgðarmaður verktaka er Kristinn H. Svanbergsson s: 897 8845.

Framkvæmdirnar eru háðar veðri og geta tímasetningar því tekið breytingum.