Menning og listir á Vestfjörðum – síðasti skráningardagur

Í dag, mánudaginn 23. nóvember, er síðasti dagur skráningar á ráðstefnu um menningu, listir og skapandi greinar á Vestfjörðum sem fram fer fimmtudaginn 26. nóvember í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Edinborgarhúsið.

Markmið ráðstefnunnar er að leiða saman listafólk, menningarstofnanir, hagaðila, sveitarfélög og ráðuneyti til samtals um stöðu, styrkleika og framtíðartækifæri menningar og skapandi greina á Vestfjörðum.

Skráning opin til lok dags

Ráðstefnan er opin öllum á meðan húsrúm leyfir og þátttaka er ókeypis. Skráning er nauðsynleg og er opin til lok dags í dag, 23. nóvember.

Skráning á ráðstefnuna

Hádegisverður er í boði ráðuneytisins. Gestir greiða sjálfir fyrir kvöldverð og þarf að skrá sig sérstaklega í hann.

Einnig verður hægt að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi.