Nemendafélag MÍ bauð bæjarstjórum til samtals um framtíðina

Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, Eyþór Freyr Árnason, Grétar Logi Sigurðsson,  Kristján Hrafn Kristjánsso…
Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, Eyþór Freyr Árnason, Grétar Logi Sigurðsson, Kristján Hrafn Kristjánsson, Daníel Stefán Jóhannsson Górecki, Aðalbjörg Birna Haraldsdóttir, Lovísa Matthildur Tumadóttir og Gylfi Ólafsson.



Að frumkvæði nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði áttu Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, og Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, bæjarstjóri Bolungarvíkur, samtal við stjórn nemendafélags skólans í aðdraganda landsverkefnisins Samtal.

Verkefnið fer fram 10. október undir yfirskriftinni„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ og miðar að því að efla samtal kynslóða um framtíð samfélagsins. 

Mikilvægt að raddir ungs fólks heyrist

Á fundinum, sem fram fór 2. október, ræddu nemendur og bæjarstjórarnir mikilvægi þess að ungt fólk taki virkan þátt í samfélagsumræðunni og hafi raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á þróun nærsamfélagsins og framtíðarsýn þess.

10. október í Menntaskólanum á Ísafirði

Verkefnið Samtal er haldið í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 og hefur það að markmiði að efla samtal, hlustun og samvinnu kynslóða um framtíð samfélagsins.

Samtalið á norðanverðum Vestfjörðum fer fram í Menntaskólanum á Ísafirði laugardaginn 10. október og miðar að því að skapa vettvang fyrir opið samtal kynslóða um framtíð samfélagsins. Ungt fólk leiðir samtölin, en fólk á öllum aldri er hvatt að skrá sig til þátttöku.

 

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á talasaman.is.

 


Mynd frá fundi nemendafélags MÍ við bæjarstjóra.