Nýr bæklingur um viðbúnað almennings
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja áfallaþol samfélagsins. Í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig einstaklingar og fjölskyldur geta undirbúið sig fyrir óvæntar aðstæður og truflanir á grunnþjónustu.
Reynsla síðustu ára hefur sýnt mikilvægi þess að almenningur sé vel upplýstur og undirbúinn þegar óvæntar aðstæður skapast, hvort sem um er að ræða náttúruhamfarir, óveður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir eða aðra atburði sem geta raskað daglegu lífi.
Góður undirbúningur getur skipt sköpum
Í Verum viðbúin er fjallað um ýmsa þætti sem mikilvægt er að huga að áður en á reynir, meðal annars mat og neysluvatn, rafmagn og húshitun, samskipti, samgöngur og rýmingu.
Góður undirbúningur getur skipt miklu máli þegar óvæntar aðstæður skapast. Með því að kynna sér fyrirfram hvernig bregðast skuli við og gera einfaldar ráðstafanir á heimilinu má auka öryggi einstaklinga og fjölskyldna og um leið styrkja viðbúnað samfélagsins í heild.
Ísafjarðarbær hvetur íbúa til að kynna sér efni bæklingsins, fara yfir viðbúnað heimilisins og ræða við fjölskylduna hvernig bregðast skuli við ef grunnþjónusta rofnar eða aðrar óvæntar aðstæður skapast.
Hvar er hægt að nálgast bæklinginn?
Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is og verður jafnframt aðgengilegur á vefnum Verum viðbúin. Þar má nálgast efnið á íslensku, ensku og pólsku, auk útgáfu á auðlesnu máli og á táknmáli.
Prentaðri útgáfu bæklingsins verður einnig dreift á völdum stöðum um landið með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar samhliða sölu Neyðarkallsins. Markmiðið er að sem flestir hafi aðgang að upplýsingum sem geta skipt sköpum þegar á reynir.
Bæklingurinn er aðgengilegur á íslensku, ensku og pólsku, auk auðlesinnar útgáfu og á táknmáli.
Kynntu þér síðu almannavarna Verum viðbúin.