Nýr heitur pottur tekinn í notkun við sundlaugina á Suðureyri
12.10.2026
Fréttir
Nýr heitur pottur hefur verið tekinn í notkun við sundlaugina á Suðureyri og er nú tilbúinn til notkunar fyrir íbúa og gesti.
Potturinn er 3,45 x 2,85 metrar að stærð og rúmar um 4.000 lítra af vatni.
Nýi potturinn kemur í stað eldri potts og er liður í endurnýjun aðstöðunnar við sundlaugina á Suðureyri. Vonast til að hann verði vinsæll samverustaður jafnt fyrir heimafólk sem gesti. Íbúar eru hvattir til að líta við og prófa nýja pottinn.
