Nýtt skipurit Ísafjarðarbæjar samþykkt

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt einróma nýtt skipurit sveitarfélagsins. Skipuritið tekur mið af breytingum sem orðið hafa á starfsemi og skipulagi sveitarfélagsins frá síðustu uppfærslu 2021 en grunnskipulag stjórnsýslunnar, með fjórum meginsviðum undir bæjarstjóra, helst óbreytt.

Stærsta breytingin er á umhverfis- og eignasviði. Þar sem starfsemin skiptist í tvær deildir, skipulags- og mannvirkjadeild og umhverfis- og framkvæmdardeild, með deildarstjóra yfir hvorri deild. Markmiðið er að skýra ábyrgð og mannaforráð og bæta yfirsýn, en sviðsstjóri ber áfram heildarábyrgð á sviðinu.

Skipuritið hefur einnig verið uppfært til að endurspegla breytingar á störfum og verkaskiptingu annarra sviða. Farsæld er nú sérstaklega tilgreind sem þverfaglegt verkefni skóla- og tómstundasviðs og velferðarsviðs og breytingar á nefndaskipan, stjórnum og samstarfsráðum hafa verið færðar inn.

Skoða skipurit Ísafjarðarbæjar