Opið fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Ferðamálastofa hefur opnað fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2027. Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 þriðjudaginn 27. október 2026. 

Sveitarfélög, einkaaðilar og aðrir umsjónaraðilar ferðamannastaða og ferðamannaleiða geta sótt um styrki úr sjóðnum til verkefna sem stuðla að öryggi ferðamanna, náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða. Einnig er hægt að sækja um styrk vegna undirbúnings- og hönnunarvinnu sem nauðsynleg er fyrir slíkar framkvæmdir.

Styrkir eru veittir til verkefna en ekki rekstrar. Meðal skilyrða er að ferðamannastaðir séu opnir almenningi án gjaldtöku fyrir aðgang, þó heimilt sé að taka gjald fyrir veitta þjónustu. 

Í ár er sérstök áhersla lögð á verkefni sem styrkja minna sótt svæði og stuðla að lengingu ferðatímabils.

Nánari upplýsingar um styrkhæf verkefni, umsóknarferlið og fylgiskjöl má finna á upplýsingasíðu Ferðamálastofu: Upplýsingasíða um umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða