Óskað eftir tilboðum í máltíðaþjónustu á Flateyri

ÍÍsafjarðarbær óskar eftir tilboðum í máltíðaþjónustu á Flateyri, m.a. vegna skólamáltíða fyrir Grunnskóla Önundarfjarðar, leikskóla og tengda þjónustu eftir þörfum. Útboðið er framkvæmt sem almennt útboð á grundvelli 34. gr., sbr. 1. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2016120.html

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í framleiðslu og afhendingu máltíða fyrir starfsstöðvar á Flateyri samkvæmt skilmálum útboðsins. Um er að ræða framleiðslu og afhendingu heitra hádegismáltíða fyrir grunnskóla, leikskóla og eftir atvikum tengda velferðarþjónustu á Flateyri.

Tilboðum verður aðeins tekið til mats ef þau uppfylla skilmála og lágmarkskröfur útboðsins. Lægsta gilda tilboði verður tekið, að því gefnu að það sé innan kostnaðaráætlunar og fjárheimilda kaupanda.

Helstu dagsetningar:

  • Útboðsgögn birt og send út: 15. september 2026
  • Fyrirspurnir berist fyrir: 21. september 2026 kl. 12:00
  • Svarfrestur fyrirspurna: 23. september 2026
  • Tilboðsblað og nánari upplýsingar má nálgast hjá Hafdísi Gunnarsdóttur á netfanginu hafdisgu@isafjordur.is
  • Skilafrestur tilboða: 28. september 2026 kl. 12:00
  • Opnun tilboða: 28. september 2026 kl. 12:15
  • Tilkynning um val tilboðs: stefnt er að 29. september 2026
  • Tilboð skulu gilda til: 31. október 2026
  • Samningstími: frá 1. október 2026 til 30. september 2029, með heimild til framlengingar í allt að tvö ár
  • Uppsagnarfrestur: Þrír mánuðir
  • Afhending boðinnar þjónustu: stefnt er að upphafi frá 1. október 2026, en heimilt er að semja um upphaf frá 1. nóvember 2026 ef valinn bjóðandi þarf undirbúningstíma

Bjóðendur skulu skila tilboðum sínum á rafrænu formi í tölvupósti á póstfangið hafdisgu@isafjordur.is, merkt „Verðfyrirspurn nr. 2026090098 – Máltíðaþjónusta á Flateyri“.