Þjónustugátt Ísafjarðarbæjar aðgengileg á fimm tungumálum

Þjónustugátt Ísafjarðarbæjar hefur verið gerð aðgengileg á fleiri tungumálum. Notendur geta nú valið á milli íslensku, ensku, pólsku, spænsku og úkraínsku með því að smella á tungumálamerkið í þjónustugáttinni.

Í þjónustugáttinni er hægt að sækja rafrænt um ýmsa þjónustu sveitarfélagsins, fylgjast með stöðu mála og nálgast og undirrita skjöl og samninga. Þar er einnig hægt að skoða stöðu reikninga og hreyfingayfirlit og vista eða prenta gögn beint úr gáttinni.

Hvað er hægt að gera í þjónustugáttinni?

Þar er meðal annars hægt að:

  • sækja um byggingarleyfi 
  • sækja um velferðarþjónustu 
  • sækja um menningarstyrki 
  • sækja um leyfi til hundahalds 
  • fylgjast með stöðu eigin mála
  • nálgast og undirrita skjöl og samninga
  • skoða stöðu reikninga og hreyfingayfirlit.

Starfsfólk Ísafjarðarbæjar getur einnig sent gögn beint til launadeildar í gegnum þjónustugáttina.

Svona notar þú þjónustugáttina

  1. Farðu inn á https://thjonustugatt.isafjordur.is/.
  2. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
  3. Veldu tungumál með því að smella á tungumálamerkið.
  4. Veldu þá þjónustu eða umsókn sem þú þarft og fylltu út umbeðnar upplýsingar.
  5. Eftir innskráningu geturðu fylgst með stöðu mála þinna og nálgast þau gögn sem tengjast þeim. 

Þjónustugáttin er fyrst og fremst hugsuð fyrir íbúa Ísafjarðarbæjar, en einnig fyrir aðra sem sækja þjónustu eða eiga í viðskiptum við sveitarfélagið.