Truflun í kerfum Microsoft
13.11.2026
Fréttir
Vakin er athygli á því að truflun er í kerfum hugbúnaðarfyrirtæksins Microsoft.
Truflunin hefur áhrif á ýmsa þjónustu, meðal annars Outlook-tölvupóstforritið og Office-forritin og aðgengi starfsfólks Ísafjarðarbæjar að þessum kerfum. Starfsfólk getur ekki tekið á móti tölvupóstum né sent frá sér ef erindið er brýnt þá má hringja í síma 450 8000.
Samkvæmt upplýsingum frá Microsoft er unnið að því að leysa málið.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta þjónusturof kann að valda.