Undirbúa uppbyggingu áfangastaða

Undirbúa uppbyggingu áfangastaða og stíg um Sandafell

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að vinna áfram að tveimur umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Annars vegar er um að ræða skipulags- og hönnunarvinnu á áfangastöðum ferðamanna víðs vegar um sveitarfélagið og hins vegar undirbúning göngu- og hjólastígs um Sandafell á Þingeyri.

Bætt aðstaða á áfangastöðum ferðamanna

Fyrra verkefnið snýr að stöðum þar sem aukinn fjöldi ferðamanna hefur skapað þörf fyrir betri aðstöðu og skipulag. Verkefnið tekur til Flateyrar, Suðureyrar og Þingeyrar, Bunárfoss í Tungudal, Naustahvilftar, Valagils, Skrúðs og Stórurðar á Ísafirði.

Á mörgum þessara staða koma stórir hópar skemmtiferðaskipafarþega á skömmum tíma. Við skipulag og hönnun verður meðal annars horft til öruggrar aðkomu og gönguleiða, aðgengis, móttöku ferðamanna, merkinga og upplýsingagjafar. Einnig verður metin þörf fyrir aðstöðu á borð við salerni og hvíldarsvæði. 

Gert er ráð fyrir að mótuð verði sameiginleg hönnunarlína fyrir áfangastaðina svo að merkingar, móttökusvæði og önnur aðstaða hafi samræmda ásýnd en taki jafnframt mið af sérkennum hvers staðar.

Verkefnið á einnig að skapa betri forsendur fyrir því að dreifa ferðamönnum á fleiri staði innan sveitarfélagsins og draga úr álagi þar sem umferð ferðamanna er mest.

Göngu- og hjólastígur um Sandafell

Seinna verkefnið snýr að göngu- og hjólastíg um Sandafell á Þingeyri. Stígar eru þegar á hluta svæðisins en hugmyndin er að tengja þá saman og bæta við nýjum köflum þar sem þörf er á. Þannig gæti orðið til heildstætt útivistarsvæði sem nýtist bæði íbúum og gestum.

Við skipulag og hönnun verður meðal annars horft til öruggrar aðkomu og gönguleiða, aðgengis, móttöku ferðamanna, merkinga og upplýsingagjafar.

Næstu skref

Næst verða unnar kostnaðaráætlanir fyrir verkefnin og umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fullunnar. Skipulags- og hönnunarvinnan á að leggja grunn að mögulegri uppbyggingu síðar.

Fáist styrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða verður verkefnið unnið áfram í samráði við landeigendur og aðra viðeigandi aðila.