Útgáfa fjallskilaseðils í Ísafjarðarbæ 2026

Fjallskilanefnd Ísafjarðarbæjar hefur gefið út fjallskilaseðil fyrir árið 2026.

Nefndin leggur til að smölun fari fram á þann veg að bændur og aðrir fjáreigendur smali eftir niðurröðun í sláturhúsi.

Fyrri leitir verði laugardaginn 19. september og sunnudaginn 20. september 2026. Seinni leitir verði laugardaginn 3. október og sunnudaginn 4. október 2026, eins og ákveðið var á 22. fundi fjallskilanefndar 10. ágúst 2026.

Fé verði ekki sleppt í haga fyrr en eftir 15. október 2026

Útgáfa fjallskilaseðils
Samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur, 14. ágúst 2012, skal hlutaðeigandi sveitarstjórn eða fjallskilanefnd árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað. Fjallskilaseðill skal berast eigi síðar en 15 dögum áður en fjallskil byrja þar sem kemur fram hvað hver landeigandi á að leggja til fjallskila á því hausti. Skal tilnefna leitarstjóra einn eða fleiri sem stjórni göngum leitarmanna og annist að leitir fari vel og skipulega fram.

Gangna- og réttarstjórar
Lagt er til að eftirtaldir aðilar verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ.

Í Skutulsfirði

Hraunsrétt:
Hallgrímur Hjálmarsson
Kirkjubólsrétt:
Steingrímur Jónsson
Arnardalsrétt:
Þorbjörn H. Jóhannesson
Seljalandsdalur
Kristján Þór Kristjánsson

Í Súgandafirði

Keflavík að Seli:
Svavar Birkisson
Frá Seli að Sunddal:
Kristján Bjarni Karlsson
Frá Flateyri fyrir Sauðanes að Sunddal:
Þorvaldur H. Þórðarson.

Í Önundarfirði

Frá Flateyri að Breiðadalsá:
Kristján Darri Ólafsson
Frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum:
Jóhann Ingi Þorsteinsson og Eyvindur Atli Ásvaldsson
Vífilsmýrar að Þórustöðum:
Jóhann Ingi Þorsteinsson
Hjarðardalur að Þórustöðum:
Eyvindur Atli Ásvaldsson
Hjarðardalur að Ingjaldssandi:
Guðmundur St. Björgmundsson

Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna

Ingjaldssandur:
Elísabet Pétursdóttir
Frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal og Barða:
Elísabet Pétursdóttir
Frá Fjallaskaga að Alviðru:
Gylfi Ólafsson
Alviðrufjall og Núpsdalur:
Hermann Drengsson og Jón Skúlason
Frá Hvassahrygg að Glórugili:
Jón Skúlason
Frá Glórugili að Höfða:
Hermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson
Höfði að Lambadal
Sighvatur Jón Þórarinsson
Lambadalur til og með Hvallátursdal
Sæmundur Bjarni Guðmundsson

Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna

Frá Hvallátursá að Þingeyri:
Ómar Dýri Sigurðsson
Brekkudalur að Kirkjubólsdal:
Sigrún Guðmundsdóttir
Kirkjubólsdalur að Hólum:
Sigrún Guðmundsdóttir
Hólar að Lokinhömrum:
Friðbert Jón Kristjánsson

Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna

Lokinhamradalur að Stapadal:
Friðbert Jón Kristjánsson og Sigrún Guðmundsdóttir
Stapadalur og Álftamýri:
Guðmundur G. Guðmundsson.
Bauluhús að Hjallkárseyri:
Guðjón Ingólfsson og Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Hjallkárseyri að varnargarði á Mjólkárhlíð:
Guðjón Ingólfsson og Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Frá Mjólkárhlíð að Ósi:
Sæmundur Bjarni Guðmundsson

Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er.