Vel heppnuð menningarráðstefna og undirritun samnings við Edinborgarhúsið
Vel heppnuð menningarráðstefna og tímamótasamningur undirritaður á Ísafirði
Menning og listir voru í brennidepli á Ísafirði fimmtudaginn 26. nóvember þegar ráðstefnan Menning og listir á Vestfjörðum fór fram í Edinborgarhúsinu. Ráðstefnan var vel sótt og skapaði vettvang fyrir samtal um stöðu menningar og skapandi greina á Vestfjörðum, styrkleika svæðisins og tækifæri til framtíðar.
Markmið ráðstefnunnar var að leiða saman listafólk, menningarstofnanir, hagaðila, sveitarfélög og ráðuneyti og ræða meðal annars hvernig efla megi menningarstarf og skapandi greinar, styrkja innviði og skapa fjölbreyttari tækifæri til listsköpunar og menningarþátttöku á Vestfjörðum. Ráðstefnan var haldin í samstarfi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Ísafjarðarbæjar, Vestfjarðastofu og Edinborgarhússins.
Samningur undirritaður í upphafi ráðstefnunnar
Einn af hápunktum dagsins var undirritun menningarsamnings í upphafi ráðstefnunnar. Undirritunin markar mikilvægt skref í samstarfi um menningarstarf á svæðinu og fellur vel að meginviðfangsefnum ráðstefnunnar.
Samningurinn tengist jafnframt þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Edinborgarhúsinu. Húsið hefur unnið að endurskipulagningu reksturs og átt í viðræðum við sveitarfélag og ríki um rekstrarframlög. Í stefnu Edinborgarhússins fyrir árin 2025–2030 er lögð áhersla á að styrkja stöðu þess sem menningarmiðstöðvar Vestfjarða og efla menningarlíf á svæðinu til lengri tíma.
Ingi Björn Guðnason, stjórnarformaður Edinborgarhússins, Logi Már Einarsson, ráðherra og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri við undirritun samningsins. Ljósmynd: Haukur Sigurðsson.
Samstarf Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins styrkt
Á 1390. fundi bæjarráðs var til umfjöllunar tvíhliða samning Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins. Samkvæmt fundargerð bæjarráðs kemur hann í kjölfar þríhliða samkomulags um 30 milljóna króna styrk til Edinborgarhússins.
Með tvíhliða samningnum fellur niður fyrri styrktarsamningur vegna fasteignagjalda og greiðslu rekstrarkostnaðar almenningssalerna. Jafnframt er gert ráð fyrir að Ísafjarðarbær skipi fulltrúa í stjórn Edinborgarhússins.
Samningarnir og ráðstefnan marka þannig mikilvægan dag fyrir menningarlíf á Ísafirði og Vestfjörðum og skapa grundvöll fyrir áframhaldandi samstarf um öflugt og fjölbreytt lista- og menningarstarf á svæðinu.