Viðauki við fjárhagsáætlun 2026
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum 3. september 2026 uppfærðan viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna framkvæmdaáætlunar sveitarfélagsins og aukaverka sem komið hafa upp við malbikunarframkvæmdir ársins.
Málið á sér aðdraganda í umfjöllun bæjarráðs á 1377. fundi þess 20. ágúst síðastliðinn, þar sem lagt var fram minnisblað frá Axel R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, um aukaverk og forgangsröðun malbiksframkvæmda ársins. Í kjölfarið samþykkti bæjarráð að ráðast í ákveðin aukaverkefni og fól bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun vegna þeirra.
Á 1379. fundi bæjarráðs 3. september var síðan lagður fram viðauki nr. 15. Viðaukinn felur meðal annars í sér tilfærslu fjárheimilda innan Hafnarsjóðs vegna lagfæringar vegarins í Dagverðardal. Jafnframt voru lögð fram minnisblöð hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs ásamt uppfærðri framkvæmdaáætlun ársins 2026.
Við afgreiðslu málsins ákvað bæjarráð jafnframt að færa malbikun Skarfatanga og Æðatanga til vorsins 2027. Bæjarstjóra var falið að uppfæra viðaukann til samræmis við þá ákvörðun áður en hann yrði lagður fyrir bæjarstjórn.
Viðaukinn hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu Ísafjarðarbæjar. Rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarfélagsins helst óbreytt og nemur áfram 274,6 milljónum króna. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A- og B-hluta, helst einnig óbreytt og nemur 581,6 milljónum króna.
Tillagan var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn með níu atkvæðum.