Kennsluráðgjöf
Á Skóla- og tómstundasviði starfar kennsluráðgjafi fyrir grunnskólana í Ísafjarðarbæ.
Hlutverk hans er að efla faglegt starf grunnskóla þannig að nemendur fái sem best notið sín í námi og starfsfólk skólanna njóti stuðnings og ráðgjafar. Beiðnir um kennsluráðgjöf fara í gegnum kennara og/eða skólastjórnendur, en einnig geta forráðamenn haft beint samband við kennsluráðgjafa í síma eða tölvupósti.
Kennsluráðgjafi er Helga S. Snorradóttir.