Dægradvöl Ísafirði – Stuðningsfulltrúar

Laus eru til umsóknar þrjú störf stuðningsfulltrúa í dægradvöl á Ísafirði. Störfin eru tímabundin frá ágúst til 4. júní 2027. Vinnutíminn er frá 13:00 til 16:00 (42% starfshlutfall) alla virka daga. Næsti yfirmaður er forstöðumaður dægradvalar. Störfin eru afar skemmtileg, lífleg og gefandi.

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í uppeldisstarfi þar sem megináhersla er lögð á velferð og vellíðan barns/barna
  • Full þátttaka í öllu dagskipulagi dægradvalar og frístundar
  • Samstarf við foreldra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
  • Reglusemi
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Starfsreynsla á frístundasviði kostur
  • Vera orðin(n) 18 ára

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026. Umsóknum skal skilað til Evu Maríu Einarsdóttur, forstöðumanns, í netfangið evaei@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva í síma: 450-8059 / 450-8052 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?