Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð
Ísafjarðarbær óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina á Ísafirði.
Leitað er að áhugasömum og drífandi einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með unglingum. Félagsmiðstöðin býður upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir börn á aldrinum 13 -16 ára. Hlutverk miðstöðvarinnar er að styðja við unglinga í gegnum fjölbreytt tómstundastarf, hópefli og hópastarf. Meginmarkmið starfsins er að veita unglingum tækifæri til samveru og stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn tómstundaleiðbeinenda.
Um er að ræða tímabundið starf í tímavinnu fram til 4. júní 2027, tvö kvöld í viku frá 19:30-22:00 og föstudaga frá 19:30-22:30 á rúllandi vöktum. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hafa umsjón með frístundastarfi unglinga
- Vinna í samræmi við stefnu Ísafjarðarbæjar í íþrótta- og tómstundamálum
- Er nánasti samstarfsmaður barna og unglinga í ráðum og nefndum og aðstoðar þá við skipulagningu og framkvæmd viðburða eins og við á
- Samráð og samvinna við ungmenni og starfsfólk
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfinu
- Starfsreynsla á sviði forvarna-, félags- og tómstundamála æskileg
- Gott vald á íslenskri tungu
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og leiðtogahæfni
- Reglusemi
- Þarf að vera 20 ára eða eldri
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.
Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2026. Umsóknum skal skilað til Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, í netfangið dagnyf@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný í síma: 450-8000 eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-