Grunnskólinn á Ísafirði – Stuðningsfulltrúar
Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar störf stuðningsfulltrúa. Um er að ræða 75% starfshlutfall (67% miðað við launadreifingu) og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið er tímabundið til eins árs með möguleika á fastráðningu.
Starf stuðningsfulltrúa við Grunnskólann á Ísafirði tengist einkum þeim nemendum skólans sem hafa sérþarfir og/eða þurfa á sérkennslu eða á sérstakri aðstoð að halda. Einnig hópum þar sem sérstakrar aðstoðar er þörf. Oftast starfar stuðningsfulltrúi innan bekkja undir verkstjórn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu sem er hans næsti yfirmaður. Til viðbótar er honum falin ýmis skólatengd viðfangsefni, eins og gæsla o.þ.h..
Starfstími stuðningsfulltrúa er yfirleitt um 9,5 mánuðir á ári. Heimild um tilflutning vinnuskyldu skv. ákvæði 2.1.1 í kjarasamningi er höfð til hliðsjónar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoð og stuðningur við nemendur
- Eftirfylgni kennsluáætlunar og/eða einstaklingsnámskrár
- Vinna við ýmis skólatengd verkefni
- Gæsla nemenda
- Samstarf við kennara og deildarstjóra stoðþjónustu
Hæfniskröfur:
- Stuðningsfulltrúanám æskilegt
- Þjálfunar-, leiðtoga- og hvatningarfærni
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Handlagni og verkkunnátta til að leysa úr ólíkum verkefnum
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Gott frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta og færni í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta kostur
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Umsóknum skal skilað til Guðbjargar Höllu Magnadóttur skólastjóra á netfangið gudbjorgma@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Halla í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-