Starfsmaður skammtímadvalar
Skammtímadvöl auglýsir eftir starfsmanni í tímavinnu eða í 20% starf á 8 tíma kvöld og morgunvaktir föstudag til sunnudags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Hvestu og skammtímadvalar.
Markmiðið með skammtímadvöl er að fjölskyldur fatlaðra barna og ungmenna eigi kost á því að börn þeirra njóti tímabundinnar dvalar utan heimilis. Þjónustunni er ætlað stiðja við og að létta álag af fjölskyldum fatlaðra barna. Einnig eiga fullorðnir þjónustuþegar sem búa í foreldrahúsum kost á skammtímadvöl með það markmið að veita þeim tilbreytingu í daglegt líf eða til undirbúnings fyrir flutningi úr foreldrahúsum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
- Önnur tilfallandi störf samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Góð íslenskukunnátta
- Stuðningsfulltrúanám I og II æskilegt
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
- Frumkvæði og samviskusemi
- Almenn ökuréttindi æskileg
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/VerkVest).
Umsóknum skal skilað til Sigþrúðar Margrétar Gunnsteinsdóttur, forstöðumanns Hvestu og skammtímavistunar á sigthrudur@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2026. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður í síma 773-7271 eða í gegnum ofangreint netfang.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-