Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Vilt þú leiða öflugt teymi, byggja upp sterk viðskiptatengsl og hafa raunveruleg áhrif á samfélagið á Vestfjörðum?
Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum leiðtoga í starf útibússtjóra á Ísafirði. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á þjónustu, viðskiptum og fólki, og vill taka virkan þátt í áframhaldandi þróun bankans og viðskiptalífs á svæðinu.
Útibú Íslandsbanka á Ísafirði gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og þjónar bæði einstaklingum og fyrirtækjum með fjölbreyttum fjármála- og ráðgjafalausnum. Sem útibússtjóri berð þú ábyrgð fyrirtækjaþjónustu útibúsins, sókn þess og vexti, rekstri útibúsins, árangri og þróun öflugrar þjónustu- og viðskiptamenningar.
Helstu verkefni
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við fyrirtæki og samfélagið á svæðinu.
- Drífa sölu- og viðskiptaþróun og stuðla að áframhaldandi vexti.
- Fylgja eftir markmiðum, rekstraráætlunum og árangursmælikvörðum.
- Tryggja að starfsemin sé í samræmi við reglur, stefnu og verklag bankans.
- Taka virkan þátt í þróun og umbótum á þjónustu, ferlum og vinnubrögðum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur
- Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfileika.
- Frumkvæði, drifkraft og getu til að hrinda hugmyndum í framkvæmd.
- Sterkan viðskiptaskilning og reynslu af þjónustu eða sölu.
- Reynslu af stjórnunarstörfum og góðan árangur í að leiða fólk og teymi.
- Áhuga á þróun fjármálaþjónustu og nýtingu tækni til að bæta þjónustu og vinnulag.
- Góða greiningarhæfni og getu til að taka upplýstar ákvarðanir.
- Menntun sem nýtist í starfi.
Frekari upplýsingar:
Frekari upplýsingar veita Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).
Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.
Við hvetjum umsækjendur til að sækja um sem fyrst - við áskiljum okkur rétt til þess að byrja að vinna úr umsóknum áður en umsóknarfrestur rennur út.