575. fundur bæjarstjórnar
Bæjarstjórn kemur saman til 575. fundar fimmtudaginn 17. september kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá
Almenn mál
1. 2026050217 - Nefndarmenn 2026-2030 - lausn frá störfum
Lögð fram beiðni Sigurðar Jóns Hreinssonar um lausn frá störfum sínum sem bæjarfulltrúi S-lista Samfylkingarinnar.
Forseti leggur fram tillögu um að bæjarstjórn samþykki að veita Sigurði Jóni Hreinssyni, bæjarfulltrúa, lausn frá störfum í bæjarstjórn og nefndum á vegum sveitarfélagsins frá og með 17. september 2026.
Bæjarstjórn þakkar Sigurði Jóni Hreinssyni fyrir vel unnin störf í þágu Ísafjarðarbæjar. Samhliða verður Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, annar varafulltrúi S-lista Samfylkingarinnar.
2. 2026050217 - Nefndarmenn 2026-2030 - Hafnarstjórn
Tillaga forseta um að Finney Rakel Árnadóttir verði kosinn aðalfulltrúi S-lista Samfylkingarinnar í Hafnarstjórn, í stað Sigurðar Jóns Hreinssonar.
3. 2026080103 Tilboð um þjónustu Bergsins headspace við ungmenni Ísafjarðarbæjar
Tillaga frá 506. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki tilboð Bergsins headspace um þjónustu við ungmenni Ísafjarðarbæjar.
4. 2026090084 - Reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála - endurskoðun 2026
Tillaga frá 182. fundi menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 14. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki endurskoðaðar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála þar sem hámarksstyrkfjárhæð er hækkuð í kr. 300.000.
5. 2026090083 - Act Alone - samningur 2027-2029
Tillaga frá 182. fundi menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 14. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjum samnings við Act Alone fyrir 2027-2029.
6. 2026060070 - Deiliskipulagsbreyting Eyrarinnar, fyrir Eyrarskjól
Tillaga frá 678. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar, fyrir færanlega stofu við Eyrarskjól við Eyrargötu á Ísafirði, unnið af ráðgjafa Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ, dags. 3. júní 2026
7. 2026020060 - Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng. Ósk um aðalskipulagsbreytingu
Tillaga frá 677. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, með hliðsjón af auknu afhendingaröryggi á norðanverðum Vestfjörðum.
8. 2025010079 - Tunguskeið, aðalskipulag. Breytt landnotkun
Tillaga frá 677. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi drög, að núverandi landnotkunarflokkar verði áfram verslun og þjónusta annars vegar og athafnasvæði hins vegar í nýju aðalskipulagi.
9. 2025060065 - Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050
Tillaga frá 677. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki ákvæði hverfisverndar í þéttbýli á svæðum HV-20 og Hv-8, í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050.
10. 2026050229 - Stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar 2026-2030
Tillaga forseta um að Gylfi Ólafsson verði kosinn í stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar.
11. 2026050221 - Kosning í öldungaráð 2026-2030
Tillaga forseta um kosningu fulltrúa í öldungaráð 2026-2030.
12. 2026050224 - Kosning í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks
Tillaga forseta um kosningu fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Fundargerðir til kynningar
13. 2608016F - Hafnarstjórn - 273
Lögð fram til kynningar fundargerð 273. fundar hafnarstjórnar sem haldin var 27. ágúst 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.
14. 2609002F - Hafnarstjórn - 274
Lögð fram til kynningar fundargerð 274. fundar hafnarstjórnar sem haldin var 8. september 2026.
Fundargerðin er í 3 liðum.
15. 2609011F - Menningarmálanefnd - 182
Lögð fram til kynningar fundargerð 182. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 14. september 2026.
Fundargerðin er í 13 liðum.
16. 2608011F - Skipulags- og mannvirkjanefnd - 677
Lögð fram til kynningar fundargerð 677. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026.
Fundargerðin er í 11 liðum.
17. 2609006F - Skipulags- og mannvirkjanefnd - 678
Lögð fram til kynningar fundargerð 678. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026.
Fundargerðin er í 12 liðum.
18. 2608019F - Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 48
Lögð fram til kynningar fundargerð 48. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 7. september 2026.
Fundargerðin er í 8 liðum.
19. 2609005F - Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 172
Lögð fram til kynningar fundargerð 172. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026.
Fundargerðin er í 9 liðum.
20. 2607003F - Velferðarnefnd - 506
Lögð fram til kynningar fundargerð 506. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. ágúst 2026.
Fundargerðin er í 11 liðum.
21. 2609010F - Velferðarnefnd - 507
Lögð fram til kynningar fundargerð 507. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 10. september 2026.
Fundargerðin er í 8 liðum.