579. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn kemur saman til 579. fundar fimmtudaginn 19. november kl. 17. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2026030243

Bæjarstjóri leggur fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027, og næstu þriggja ára, fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.

2. Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Bæjarstjóri leggur framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2027-2032 fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.

3. Þjónustustefna 2027-2030 - 2026090268

Bæjarstjóri leggur Þjónustustefnu Ísafjarðarbæjar 2027-2030 fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.

4. Reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka við fjárhagsáætlun - 2026110023

Á 1387. fundi bæjarráðs, þann 5. nóvember 2026 voru lagðar fram til samþykktar nýjar reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka. Jafnframt lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 3. nóvember 2026, til skýringar.

Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að samþykkja reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka við fjárhagsáætlun.

5. Skipulagsbreytingar umhverfis- og eignasvið - nýtt skipurit 2026 - 2026100131

Tillaga frá 1388. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar, með nýrri stöðu deildarstjóra og uppskiptingu sviðsins í tvær megindeildir, skipulag og mannvirki, annars vegar, og umhverfi og framkvæmdir, hins vegar, sem hvor um sig heyrir undir deildarstjóra, og með sviðsstjóra efstan í skipuriti.

6. Skipurit Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026060031

Tillaga frá 1388. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki nýtt skipurit Ísafjarðarbæjar, með innfelldum breytingum á skipulagi umhverfis- og eignasviðs, og öðrum þeim breytingum frá núgildandi skipuriti.

7. Þríhliða samningur um Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið - 2026110096

Tillaga frá 1388. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki þríhliða samning um Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið, sem er gerður á milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins ehf., um styrk árlega styrk að fjárhæð kr. 30.000.000 til næstu þriggja ára.

8. Lagnaleið ljósleiðara í Tungudal, Skutulsfirði - 2026100174

Tillaga frá 682. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila lagningu heimtauga í Tungudal í samræmi við framlögð gögn.

9. Ytri Veðrará í Önundarfirði. Umsókn um skipulag - 2025090035

Tillaga frá 682. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila landeiganda að hefja vinnu við gerð deiliskipulagslýsingar skv. 38.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

10. Stjórn Framkvæmdasjóðs Skrúðs 2026-2030 - 2026050238

Tillaga forseta um að Smári Karlsson verði skipaður í stjórn Framkvæmdastjórnar Skrúðs, í stað Tinnu Ólafsdóttur.

Fundargerðir til kynningar

 

11. Bæjarráð - 1386 - 2610026F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1386. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 29. október 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.

12. Bæjarráð - 1387 - 2611001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1387. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.

13. Bæjarráð - 1388 - 2611006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1388. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.

14. Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps - 45 - 2610015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1386. fundar sameinaðrar almannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, en fundur var haldinn 29. október 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.

15. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 682 - 2610022F

Lögð fram til kynningar fundargerð 682. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.

16. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 175 - 2610021F

Lögð fram til kynningar fundargerð 175. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.