Bæjarstjórn samþykkir samstarf við Bergið headspace

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt tilboð frá Berginu headspace um þjónustu fyrir ungmenni í sveitarfélaginu. Málið var áður tekið fyrir á fundi velferðarnefndar 27. ágúst sl. sem lagði til að gengið yrði að tilboðinu.

Bergið headspace er lágþröskulda stuðnings- og ráðgjafaúrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 25 ára. Þjónustan er ókeypis, engin tilvísun er nauðsynleg og markmið hennar er að veita ungmennum stuðning, ráðgjöf og fræðslu á þeirra eigin forsendum. Ekkert vandamál er talið of lítið eða of stórt til að leita sér aðstoðar vegna. Þjónustan er bæði veitt í viðtölum á starfsstöðvum Bergsins og í gegnum fjarþjónustu um allt land.

Með samþykktinni verður ungmennum í Ísafjarðarbæ tryggður aðgangur að sérhæfðri ráðgjöf Bergsins headspace sem miðar að því að efla geðheilsu, vellíðan og þátttöku ungs fólks í samfélaginu. Starfsemin byggir á snemmtækum stuðningi og því að mæta ungmennum þar sem þau eru stödd hverju sinni.

Tillagan var lögð fram af velferðarnefnd og samþykkt samhljóða í bæjarstjórn á fundi 17. september.

Samstarfið er liður í áframhaldandi áherslu Ísafjarðarbæjar á að styrkja þjónustu við ungmenni og tryggja þeim greiðan aðgang að stuðningi og ráðgjöf þegar á þarf að halda.

Nánari upplýsingar um Bergið headspace má finna á vefsíðu samtakanna www.bergid.is og á vefsíðu 112