Bergrós Hjálmarsdóttir ráðin skipulags- og umhverfisfulltrúi
11.11.2026
Fréttir
Bergrós Hjálmarsdóttir hefur verið ráðin sem skipulags- og umhverfisfulltrúi hjá Ísafjarðarbæ og hóf störf í byrjun nóvember.
Bergrós er menntuð í byggingafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún kemur til Ísafjarðarbæjar frá Verði tryggingafélagi, þar sem hún hefur undanfarin ár starfað við tjónamat fasteigna. Hún hefur einnig reynslu af sölu fasteigna, samningagerð, ráðgjöf og viðskiptavinaþjónustu auk þekkingar og reynslu af byggingaframkvæmdum og skipulagsmálum.
Bergrós er fædd og uppalin á Ísafirði og snýr því aftur á heimaslóðir með ráðningunni.
Við bjóðum Bergrósu hjartanlega velkomna til starfa.