Breytingar á skipan fulltrúa í bæjarstjórn og ráðum Ísafjarðarbæjar

Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar þann 17. september var samþykkt að veita Sigurði Jóni Hreinssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, lausn frá störfum sínum í bæjarstjórn og nefndum sveitarfélagsins, að eigin ósk.

Bæjarstjórn þakkaði Sigurði Jóni fyrir vel unnin störf í þágu Ísafjarðarbæjar. Við sæti hans tekur Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, annar varafulltrúi Samfylkingarinnar.

Í kjölfar breytinganna voru samþykktar breyting á skipan hafnarstjórnar sveitarfélagsins, en Finney Rakel Árnadóttir var kosin aðalfulltrúi Samfylkingarinnar í hafnarstjórn í stað Sigurðar Jóns Hreinssonar.

Jafnframt var kosið í öldungaráð Ísafjarðarbæjar fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Bæjarstjórn kaus Auði Helgu Ólafsdóttur, Gunnlaug Einarsson og Sævar Gestsson sem aðalfulltrúa, en Guðríði Sigurðardóttur, Finn Magnússon og Karítas Maggý Pálsdóttur sem varafulltrúa. Þá var skipan fulltrúa Félags eldri borgara og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða staðfest. Auður Helga Ólafsdóttir var jafnframt kjörin formaður öldungaráðs.

Einnig var kosið í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks, þar sem Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir var kjörin aðalfulltrúi og Gerður Ágústa Sigmundsdóttir varafulltrúi. 

Að lokum var Gylfi Ólafsson var kjörinn í stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.

Allar tillögurnar voru samþykktar samhljóða í bæjarstjórn.