Brúin yfir Tunguá lokað fyrir umferð
23.09.2026
Fréttir
Ísafjarðarbær hefur lokað fyrir umferð yfir brúna yfir Tunguá sem er á leiðinni milli Tunguhverfis og Skógarbrautar. Ástand brúarinnar er bágborið, göt komin í brúargólfið og hluti þess orðinn kássufúinn.
Með öryggissjónarmið vegfarenda að leiðarljósi er ekki talið forsvaranlegt að leyfa umferð um brúnna.
Verið er að leita tilboða í nýja brú og þá verður sú breyting á að hún verður einvörðungu fyrir gangandi og hjólandi umferð.