Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 7

Hvítbók og Grænigarður, snjóflóðahættumat og malbiksframkvæmdir, og deiliskipulag í Tungudal.

Mánudagurinn leið með ýmsum innri fundum og undirbúningi. Meðal annars lagði ég lokahönd á heljarinnar umsögn um hvítbók um byggðamál. Umsögnin varð talsvert lengri en hún átti að verða þegar ég byrjaði að skrifa hana. Fjórðungssamband Vestfirðinga sendi einnig umsögn, enn ítarlegri. Hvítbókin fer eftir yfirferð umsagna til Alþingis til meðferðar og verður á endanum að byggðaáætlun.

Hálfdán skoðar landhæð á Suðurtanga.

Eftir mat fórum við yfir á Flateyri þar sem Hildur Sólmundsdóttir leikskólastjóri Grænagarðs tók á móti okkur. Færeyingar sýndu mikinn samhug með samfélögunum í Súðavík og Flateyri árið 1995 og söfnuðu miklu fé til enduruppbyggingar.

Hanna man vel eftir tónleikum sem haldnir voru víða um eyjarnar og öðrum viðburðum sem haldnir voru til að safna fé. Henni var því kært að sjá skólann og skiltið sem utaná honum er.

Það hefur fjölgað í leikskólanum á Flateyri og þar var mikið líf og fjör innan húss og utan enda krakkarnir kraftmiklir.

Miðvikudagar byrja á meirihlutafundi þar sem bæjarfulltrúar meirihlutaflokkanna og formenn nefnda fara yfir helstu viðfangsefni og viðra spurningar. Bæjarráð, sem lengi fundaði á mánudögum, fundar nú á fimmtudagsmorgnum. Takturinn er þannig í vinnunni að á þriðjudögum er reynt að senda dagskrá og fundagögn út, og þá er hægt að rýna þau á miðvikudegi.

Gunnar og Erla.

Ég hvet alla til að kynna sér hugmyndirnar og hafa skoðun á þeim. Við erum núna á skemmtilegasta tíma skipulagsvinnunnar; undirbúningur er búinn og forsendur liggja fyrir án þess að allt sé niðurnjörvað og stirt eins og gerist óhjákvæmilega í senni skrefum.

Magnús Jónsson

Bæjarráðsfundur á fimmtudag tók fyrir nýja áætlun um malbik og vegaviðhald, þar sem gerðar voru ýmsar breytingar á fyrri áætlunum.

Á fimmtudagskvöld keyrði ég svo yfir í Dýrafjörð. Á Þingeyri eru enn í gangi framkvæmdir við gröft á ofanvatnslögnum og tók ég meðfylgjandi mynd af stöðu mála nú.

Þaðan hélt ég í Haukadal og spilaði á píanó á tónleikum okkar Arnheiðar Steinþórsdóttur djasssöngkonu. Mitt eigið listabrölt er svo sem utan dagskrár þessarar dagbókar, en með þessum tónleikum lauk afar fjölbreyttri sumardagskrá sem Kómedíuleikhúsið hefur verið með í gamla félagsheimilinu í Haukadal. Hjónin Elfar Logi og Marsibil eru óþreytandi í listalífinu á svæðinu, ekki einungis í eigin listiðkun, heldur einnig í að lyfta upp öðrum listamönnum, styðja og skipuleggja.

Marsibil gerði listaverk í tengslum við sýninguna Draugar Dýrafjarðar, vofu sem stendur neðan við húsið. Ég smellti mynd af, en eins og oft er með list, er upplifunin sterkari í eigin persónu en að sjá á skjá.

Vofa er laus.

Undir hádegi á föstudagsmorgun fór ég á fund á Snjóflóðasetur Veðurstofunnar. Við ræddum ofanflóðavarnir og hættumat almennt og sértækt. Þannig þrengir gildandi hættumat verulega að uppbyggingu á Suðureyri, einkum atvinnuhúsnæði. Þar er sáralítið af lausu undirlendi. Flugvöllurinn, sem er að nokkru leyti utan hættusvæðis, er illaðgengilegur, sérstaklega fyrir stærri bíla. Við ræddum einnig stöðu hættumats undir Gleiðarhjalla, á Skeiði í Skutulsfirði og víðar. Unnið hefur verið hættumat fyrir skíðasvæðið í Tungudal sem fer fljótlega til meðferðar hjá bænum og síðar ráðherra.

Einnig er stöðugt til umfjöllunar dvöl fólks í húsum á hættusvæðum. Stundum eru það hús sem hafa þinglýsta kvöð um bann við dvöl, en svo hafa viðurlög verið óljós eða reglurnar óljósar. Í öðrum tilvikum hafa húsbyggingar verið leyfðar eða dvöl í þeim umborin gegn því að nýting sé takmarkað og eða einungis á sumrin, en svo fennir í sporin (!); viðvera fer að aukast aftur með tilheyrandi hættu.

Frumvarp til laga sem ætlað er að breyta þessu var til umfjöllunar á þingi í vor en hlaut ekki afgreiðslu.

Grunnskólar byrja í næstu viku og fastanefndir bæjarins fara fljótlega að hittast. Svæðisskipulag Vestfjarða verður undirritað í Þorskafirði á fimmtudag og þá funda stjórnir Vestfjarðastofu og Fjórðungssambandsins í fyrsta sinn eftir sumarfrí. Bæjarstjórn fundar næst 4. september.