Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Malbikun 2026 - Ísafjarðarbær - 2026030111
Á 1370. fundi bæjarráðs, þann 11. júní 2026, var lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, Axel R. Överby, dags. 11. maí 2026, vegna malbiksframkvæmda ársins 2026. Bæjarráð samþykkti tillögu sviðsstjóra að næstu skrefum varðandi útboð á malbikun hjá Ísafjarðarbæ 2026, þ.e. beinu innkaupaferli í kjölfar höfnunar tilboða hjá Vegagerðinni. Bæjarstjóra var falið að leggja fram viðauka á næsta fundi bæjarráðs.
Á 1370. fundi bæjarráðs, þann 18. júní 2026, var lagður fram viðauki 9 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar til samþykktar, ásamt minnisblaði Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 16. júní 2026. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin. Var viðaukanum vísað til bæjarstjórnar til samþykktar sem samþykkti hann á 573. fundi sínum, samdægurs.
Var málið lagt aftur fram á 1376. fundi bæjarráðs, 13. ágúst 2026, til umfjöllunar í bæjarráði vegna aukaverka og forgangsröðunar. Farið var yfir þau atriði þar sem þörf er á varðandi malbikun. Bæjarstjóra falið að vinna viðauka við fjárhagsáætlun fyrir næsta fund bæjarráðs.
Er minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 18. ágúst 2026, með kostnaðartölum vegna málsins lagt fram.

2.Leiga húsnæðis á 3. hæð í Stjórnsýsluhúsi - 2026080110
Lagt fram minnisblað Margrétar Geirsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 18. ágúst 2026, varðandi beiðni um að leiga aðstöðu á 3. hæð Stjórnsýsluhússins af KSK eignum, vegna fjölgunar starfsmanna á sviðinu. Rýmið yrði nýtt fyrir skrifstofur og færslu fundarherbergis frá 2. hæð til 3. hæðar.
Bæjarráð samþykkir beiðni sviðsstjóra um leigu á 3. hæð Stjórnsýsluhússins og felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun á næsta fundi bæjarráðs.
Margrét yfirgaf fund kl. 9:36.
Gestir
- Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 09:32
3.Fjallskilanefnd - 22 - 2608003F
Lögð fram til kynningar fundargerð 22. fundar fjallskilanefndar, en fundur var haldinn 10. ágúst 2026.
Fundargerðin er í 3 liðum.
Fundargerðin er í 3 liðum.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:43.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Dagverðardalur - fræsing, heflun og tvöföld olíumöl, frá Vestfjarðavegi að gatnamótum frístundabyggðar í Hnífum.
Garðastígur á Suðureyri - malbik.
Gatnamót Skarfatangi / Æðartangi - fræsa niður bungu í götu og malbika aftur.
Bæjarstjóra falið að ræða við Orkubú Vestfjarða vegna gangstétta í Silfurgötu og Sundstræti.
Bæjarstjóra falið að sjá um að holufyllt verði í kringum kirkjugarð við Réttarholt.
Bæjarstjóra falið að leggja fram viðauka á næsta fundi bæjarráðs vegna ofangreindra verkefna.