Dagbók bæjarstjóra 21.–26. september: Vika 12

Dagbók bæjarstjóra 21.–26. september, í 12 viku í starfi.

Móttökuhús, verkmenntahús og skútuhús. Landsþing á Akureyri og útlitið í móttöku skemmtiferðaskipa.

Á þriðjudag undirritaði ég samning um byggingu móttökuhúss fyrir skemmtiskipafarþega sem rísa mun á höfninni næsta árið. Allverk fékk verkið eftir útboð.

Þeir munu hefjast handa á næstu dögum, en síðasta skip sumarsins kom í vikunni. Verkáætlunin tekur mið af skipakomum; ytri vinnu á að ljúka fyrir næsta sumar, en of knappt er að ljúka innanhússfrágangi fyrr en næsta haust. Húsið verður því ekki tekið í notkun fyrr en sumarið 2028. Í húsinu verður salernisaðstaða, aðstaða fyrir starfsfólk hafnarinnar, ferðaþjóna og tollinn.

Einnig er unnið að undirbúningi húss og lóðar til að hýsa aðstöðu fyrir skútusjómenn. Búið er að fjölga leguplássum, en Ísafjörður er vinsæl miðstöð fyrir sjómenn á ferð um Hornstrandir og þá sem bíða byrs til Grænlands. Húsið mun rísa á svokölluðum Olíumúla, þ.e. landmegin við Bryggjusaunu. Þar verður hægt að þvo þvott, elda og breiða úr sjókortum í betri aðstæðum en í þröngum lúkörum.

Bæjarráðsfundur á miðvikudag byrjaði á að Heiðrún Tryggvadóttir og Þröstur Jóhannesson frá Menntaskólanum á Ísafirði komu til samtals. Viljayfirlýsing um að Ísafjarðarbær taki yfir framkvæmdina við stækkun verkmenntaaðstöðu skólans verður undirrituð snemma í október. Því var gagnlegt að sjá hvaða sýn þau hafa á bygginguna. Ríkið mun áfram greiða 60% af kostnaði og sveitarfélög saman 40%, en með því að færa verkefnið yfir til okkar verður liðugra að laga húsið að þörfum skólans, stytta boðleiðir við mögulegar breytingar á deiliskipulagi og vonandi sneggra viðbragð við undirbúning og framkvæmd.

Milljarði minna en 2024

Minnisblað um horfur í móttöku skemmtiferðaskipa var einnig tekið inn sem ég skrifaði í fjarveru hafnarstjóra, sem fékk þá ekki tækifæri til að leiðrétta mögulegar rangfærslur. Í minnisblaðinu dreg ég saman helstu tölur út úr bókunarkerfi hafnarinnar fyrir næstu ár.

Minnisblaðinu lýk ég á þessum orðum:

Tölur fyrir 2027 sýna þannig samdrátt um 15% milli áranna 2024 og 2027 í fjölda farþega og 36 færri skipakomur.
Tölvukerfið er stillt þannig að það sýnir ekki neinar upplýsingar um stærð eða gerð skipa fyrir árið 2028, einungis dagsetningar. Bókanir það ár eru komnar á par við bókanir fyrir 2027, en um stærð skipa liggur ekkert fyrir, auk þess sem bókanir gætu dottið út eða bæst við.
Ekki liggja fyrir nýjar tölur um heildartekjur af hverjum gesti fyrir samfélagið. Árið 2018 var það um 16 þ.kr. á farþega sem væri 24 þ.kr. á verðlagi dagsins. Árið 2027 mun, miðað við það, skila ríflega milljarði minna í tekjur en árið 2024.

Landsþing á Akureyri

Miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur fóru annars að mestu í landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fór á Akureyri.

Þó tveir þriðju sveitarstjórnarfulltrúa á landsvísu séu nýir, voru mörg kunnugleg andlit á þinginu. Fyrsta þing kjörtímabilsins hefur formlega það hlutverk að afgreiða stefnumótun sambandsins til næstu fjögurra ára, en ekki síður mikilvægt er að kynnast nýjum kollegum, miðla reynslu og mynda tengsl.

Vestfirðingar tefldu fram vaskri sveit úr sveitarstjórnum og Vestfjarðastofu. Auk þess kom Nanný Arna Guðmundsdóttir og tók sinn síðasta dans ef svo má segja, en hún hefur setið í stjórn Sambandsins síðasta kjörtímabil. Vestfirðingar eiga engan fulltrúa í stjórninni næstu fjögur ár, en pláss er fyrir tvo úr Norðvesturkjördæmi öllu og hefur kjörnefndin talið að nú væri kominn tími til að gefa Vestlendingum sterkari rödd í stjórninni.

Einn sveitarstjóri sem ég kynntist er Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrar. Við vorum kölluð í umræður um fréttir vikunnar á Rás 2 á föstudagsmorgun.

Stærsta fréttin af landsþinginu er skýr vilji sveitarstjórna til að gera sitt til að sporna við áframhaldandi verðbólgu. Vilhjálmur Birgisson virtist vera bara skratti ánægður með þetta, en mikið ríður á að kjarasamningar haldi.

Í dag laugardag fara svo fram Styrkleikarnir, viðburður til að sýna stuðning í verki fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Ég gekk einn hring í vonda veðrinu við hlið tengdamóður minnar.