Dagbók bæjarstjóra 4.–10. október: Vika 14
Dagbók bæjarstjóra 4.–10. október í 14 viku í starfi.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga, Hringborð Norðurslóða og viljayfirlýsing um byggingu verknámshúss.
Ég var stóran hluta vikunnar í Reykjavík og fyrri partur vikunnar fór í undirbúning. Hvorki bæjarráðs- né bæjarstjórnarfundur voru haldnir.
Viljayfirlýsing undirrituð
Miðvikudagur fyrir fjármálaráðstefnu er jafnan fylltur af fundum fyrir hagsmunahópa sveitarfélaga og tengda aðila. Þannig byrjaði morguninn á óformlegum fundi með skemmtiferðaskipasveitarfélögum og þar á eftir kom aðalfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum. Sú barátta sem þar hefur verið unnin hefur skilað sér í borunum sem hafa aftur skilað heitavatnsfundi í Tungudal. Ísafjörður er nú stærsti byggðakjarninn á Íslandin sem er ekki með jarðhitaveitu, en það mun breytast á næstu misserum. Áfram verður sveitarfélagið þó með köld svæði, einkum þá Flateyri, Þingeyri og Hnífsdalur.
Eftir hádegi voru sjávarútvegssveitarfélög með sinn fund, en þaðan fór ég að Kalkofnsvegi þar sem mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland undirritaði viljayfirlýsingu um að Ísafjarðarbær taki yfir byggingu verknámshúss Menntaskólans. Nú tekur við að fullklára samninginn sjálfan og ganga frá fjölmörgum óleystum málum sem tengjast þessu; þannig liggur ekki enn fyrir hversu stórt hús á að byggja, hvernig það á að líta út, né hvar nákvæmlega það á að vera.

Ég fór þaðan niður á Neshaga þar sem nýtt fyrirtæki, Arctell, var að opna starfsstöð. Í frétt RÚV um opnunina segir:
Fyrirtækið Arctell ehf., sem vinnur að fjárfestingum og nýsköpun á norðurslóðum, stendur að baki setrinu. Félagið er í eigu Guðmundar Fertram og Fanneyjar Kristínar, ásamt samstarfsfólki.
Markmiðið er að tengja saman frumkvöðla, vísindamenn og fjárfesta, efla alþjóðlegt samstarf og styðja við uppbyggingu fyrirtækja sem geta vaxið á alþjóðlegum mörkuðum.

Þetta er annað nýsköpunar- og þekkingarsetur Arctell, en það fyrsta var opnað í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Fyrirhugað er að opna fleiri slík setur, meðal annars á Ísafirði og í Nuuk á Grænlandi.
Tengingin við Ísafjörð og norðurslóðir var skýr í firnagóðum ræðum Ólafs Ragnars Grímssonar og Fertrams sjálfs og ég hlakka til að sjá hvernig undirbúningi starfsstöðvarinnar á Ísafirði mun vinda fram.

Um kvöldið var fundur landshlutasamtaka með fulltrúum innviðaráðuneytisins og Byggðastofnunar. Byggðastofnun kynnti Byggðalinsuna, en svo fór umræðan fljótt í að ræða byggðastefnu stjórnvalda, einkum fjárlagafrumvarpið og önnur frumvörp sem þing mun fjalla um í haust.
Fimmtudagur
Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna hófst svo á fimmtudeginum. Hún var haldin í Vör, nýju móttökuhúsi sem Faxaflóahafnir tóku í gagnið í vor. Móttökuhúsið sem Ísafjarðarhafnir eru að byggja er einnig ætlað skemmtiferðaskipum, en hlutverk þessara tveggja húsa eru þó gjörólík; Vör er sérstaklega byggð fyrir skiptifarþega, þá farþega sem hefja eða ljúka siglingu sinni í Reykjavík. Talsvert umstang er þar í kringum öryggiseftirlit og tollskoðun. Sökum fjarlægðar frá alþjóðaflugvöllum hefur höfnin á Ísafirði ekki sinnt slíku hlutverki. Vör var hönnuð til að geta nýst einnig á veturna og virðist hafa tekist mjög vel til með húsið.

Morguninn og eftirmiðdagurinn leið með ræðum og fræðsluerindum, og fór ég í pallborð undir einum lið undir styrkri stjórn Boga Ágústssonar.
Norðurslóðaföstudagur
Hringborð norðurslóða var einnig í vikunni. Mér hefur fundist að Ísafjarðarbær eigi að taka stærri þátt á þeim vettvangi, og í umræðu um norðurslóðir almennt, og því var það gleðilegt að Guðmundur Fertram Sigurjónsson, sem er sérstakur sendifulltrúi Hringborðsins, bauð Vestfjarðastofu í samstarf um að standa fyrir spjalli um innviðauppbyggingu á róstusömum tímum á alþjóðasviðinu.
Ég stýrði umræðum og setti innlegg frummælenda í samhengi fyrir gesti sem fylltu salinn og gott betur. Fertram sjálfur flutti ræðu, sem og Ísfirðingurinn Brynja Huld Óskarsdóttir varnarmálasérfræðingur hjá NATO-þinginu í Brussel. Einnig talaði Patti Bruns, sem stýrir samráðsvettvangi bæjarstjóra á norðurslóðum—Arctic Mayors’ Forum—og að síðustu Peter Clarkson bæjarstjóri Inuvik, sem er bær af svipaðri stærð og Ísafjörður en sem fæst við nokkuð ólíkar aðstæður en við.

Seinnipartinn hélt Varða, hugveita um þjóðaröryggi og viðnámsþrótt, útgáfuhóf vegna annars tölublaðs tímaritsins síns. Þar eru fróðlegar greinar, meðal annars Mikil ábyrgð, lítil aðkoma: Sveitarfélögin í vörnum Íslands eftir Bjarna Má Magnússon. Þar segir í inngangi að margir þeirra málaflokka sem koma að varnarmálum heyri undir sveitarfélög:
Það er því ástæða til að skoða betur hvert hlutverk þeirra [sveitarfélaga] eigi að vera í öryggis- og varnarmálum, hvaða upplýsingar þau þurfi að hafa og hvernig kostnaði vegna aukinna umsvifa verði skipt milli ríkis og sveitarfélaga. Ný stefna í varnar- og öryggismálum nefnir sveitarfélögin hverfi, en í fjármálaáætlun ríkisins eru útgjöld þeirra talin með í framlagi Íslands til 1,5% markmiðs Atlantshafsbandalagsins. Ríkið hefur þannig tekið mið af kostnaði sveitarfélaganna, án þess að fyrir liggi samkomulag um hver skuli bera þann kostnað. Meginreglan ætti að vera einföld: Ábyrgð, vald, upplýsingar og fjármagn verða að fara saman.
Talað saman
Á laugardagsmorgun var ég kominn heim og hóf daginn með því að flytja stutt erindi í upphafi sambandsráðsfundar UMFÍ sem haldinn var á Ísafirði. Í ræðu minni stiklaði ég á stóru í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Þá sagði ég að einungis samtök sem hefðu kjark til að breytast væru þau einu sem gætu lifað af breytta tíma; hér áður hefðu áskoranirnar kannski falist í fátækt og togstreitu milli sveitar og bæja, en nú væru aðrar áskoranir eins og landsbyggð gagnvart höfuðborg, símar og samfélagsmiðlar og aukinn fjöldi íbúa með annað móðurmál en íslensku.
Þá lagði ég, eins og ég geri gjarnan í ræðum af þessu tagi, út af orðum Kitta Muggs, sem ég endurorðaði eftir minni: „Ég held að allir hafi gott af því að æfa gönguskíði eða íþróttir yfirleitt. Menn verða að prófa að verða almennilega þreyttir. Það skiptir miklu máli í lífinu að kunna að gera eitthvað eftir að maður er orðinn þreyttur, sama hvort það er á líkamlega eða andlega sviðinu. Það er eitt af því sem maður lærir af því að ganga á skíðum.“
Af hótelinu þaut ég upp í Menntaskóla, en þar voru lóðsar að undirbúa sig fyrir að leiða umræður á borðum um framtíðina, en það var framtak frú Höllu Tómasdóttur forseta. Undirbúningurinn gekk vel og útkoman var góð eftir því, en síðar um daginn sat ég hluta samtalsins.

Á leiðinni heim kom ég við fyrir utan Sólborg, en þarf var verið að hífa skólaeiningar á sökkla. Vegna þess að stofurnar eru inni á skólalóð var heppilegra að vinna verkið á frídegi.

Seinnipartinn hélt Guðlaug Jónsdóttir—Didda—útgáfuhóf fyrir nýjustu bókina sína, Ævintýrapáska. Er bókin sjálfstætt framhald af Baukað og brallað í Skollavík, og er um börn sem koma í heimsókn vestur á Ísafjörð á páskum. Ég fékk að koma með nokkrar hugmyndir í bókina á fyrri stigum og því sérstaklega gaman að sjá bókina koma út.

