Deiliskipulagsbreyting við Eyrarskjól

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar vegna fyrirhugaðrar staðsetningar færanlegrar kennslustofu við Eyrarskjól við Eyrargötu á Ísafirði. Breytingin var unnin af Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ og var áður tekin fyrir á fundi skipulags- og mannvirkjanefndar.

Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að skapa skipulagslegar forsendur fyrir uppsetningu færanlegra kennslustofa á lóð Eyrarskjóls. Kennslustofurnar eru hluti af þeim breytingum sem unnið er að vegna nýs fyrirkomulags leikskólastarfs fyrir fimm ára börn, þar sem starfsemin færist yfir í leikskólana Eyrarskjól og Sólborg.

Tillaga skipulags- og mannvirkjanefndar var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn á fundi 17. september 2026.