LIFE ICEWATER kynnt fyrir nemendum MÍ
Nemendur í áfanganum Umhverfis- og átthagafræði við Menntaskólann á Ísafirði heimsóttu nýverið Ísafjarðarbæ þar sem þeir hlýddu á kynningu á LIFE ICEWATER verkefninu og fræddust um mikilvægi vatnsverndar, vatnagæða og sjálfbærrar nýtingar vatnsauðlinda.
LIFE ICEWATER
LIFE ICEWATER er umfangsmikið samstarfsverkefni Umhverfis- og orkustofnunar, Ísafjarðarbæjar og 20 annarra stofnana og sveitarfélaga. Verkefnið stendur yfir næstu sex árin og hefur það að markmiði að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.
Meðal markmiða verkefnisins eru að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi, tryggja samhæfða stjórnsýslu í vatnamálum, bæta vatnsgæði með úrbótum í fráveitumálum og fræða almenning og hagaðila um mikilvægi vatns.
Í kynningunni var sérstaklega fjallað um þann þátt verkefnisins sem snýr að Ísafjarðarbæ. Þar er unnið að því að bæta meðhöndlun fráveituvatns í Pollinum í Skutulsfirði með það að markmiði að bæta vatnsgæði svæðisins til framtíðar. Um 60% af fráveituvatni á Ísafirði rennur nú í Pollinn og því eru fyrirhugaðar mikilvægar úrbætur á fráveitukerfinu.
Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir verkefnastjóri Icewater
Vöktun og mæling
Verkefnið skiptist í tvo meginþætti. Annars vegar felst það í vöktun og mælingum á vatninu í Pollinum til að greina ástand þess. Hins vegar felur það í sér hönnun og framkvæmd aðgerða, þar á meðal sameiningu fráveituútrása og uppbyggingu hreinsistöðva sem munu bæta hreinsun fráveituvatns.
Nemendur sýndu efninu mikinn áhuga og sköpuðust góðar umræður um umhverfismál, vatnsvernd og þau verkefni sem sveitarfélög standa frammi fyrir þegar kemur að verndun náttúruauðlinda. Heimsóknin var liður í að auka vitund ungs fólks um mikilvægi hreins vatns og sjálfbærrar uppbyggingar samfélagsins.
Ísafjarðarbær þakkar nemendum fyrir komuna og áhugaverðar umræður um eitt af þeim mikilvægu umhverfisverkefnum sem nú er unnið að í sveitarfélaginu.
Hlekkir tengdir verkefninu
- Nánari upplýsingar um LIFE ICEWATER má finna á vef verkefnins
- Kort af svæðinu sem fellur undir verkefnið.