Ert þú með viðburð fyrir Veturnætur 2026?

Ísafjarðarbær kallar eftir viðburðum í dagskrá Veturnátta sem verða haldnar 21.-24. október 2022.

Hátíðin er samansafn menningarviðburða, skemmtana og uppákoma í menningarstofnunum, söfnum, verslunum og veitingastöðum bæjarins. Þema Veturnátta er HAFÍS og hvetjum við þátttakendur til að nota bláa tóna, ljós og skreytingar til að setja skemmtilegan svip á bæinn.

Þau sem vilja skella í viðburð á Veturnóttum eru hvött til að hafa samband með því að senda póst  á netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is. Eins er hægt að hafa samband ef vantar aðstoð við eitthvað, svo sem að móta góða hugmynd, finna samstarfsaðila, rými eða búnað til að framkvæmda viðburði og svo framvegis. 

Til að unnt sé að kynna dagskrána vel og tryggja sem besta umgjörð væri mjög gott að fá upplýsingar um viðburði fyrir 15. október.