Félagsmiðstöðvastarf í Ísafjarðarbæ eflt

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að bæta við 100% stöðugildi forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Djúpsins. Markmiðið er að efla félagsmiðstöðvastarf í sveitarfélaginu og faglegan stuðning við starfsemina.

Aukið vægi forvarna og þátttöku ungmenna

Félagsmiðstöðin Djúpið er með starfsemi í öllum kjörnum sveitarfélagsins. Með auknu stöðugildi er ætlunin að efla starfsemina í ljósi aukinna áskorana sem snúa að geðheilsu ungmenna, forvarnarstarfi og þátttöku þeirra.

Öflugt og aðgengilegt félagsstarf skapar ungmennum öruggan vettvang og jákvæð tengsl utan skólatíma. Efling starfsins er jafnframt í samræmi við markmið forvarnar- og lýðheilsustefnu Ísafjarðarbæjar 2026–2031, þar sem áhersla er lögð á forvarnir, vellíðan og virka þátttöku barna og ungmenna.

Horft til ungmenna á aldrinum 16–20 ára

Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að stöðugildið nýtist til þróunar og skipulagningar félagsmiðstöðvar eða ungmennahúss fyrir ungmenni á aldrinum 16–20 ára.

Áætlaður viðbótarkostnaður vegna stöðugildisins er um 10 milljónir króna á ári og verður gert ráð fyrir honum í fjárhagsáætlun ársins 2027.