Flateyri: vatn

Föstudaginn 25. september hefur verið lokað fyrir inntak á vatnstanki á Flateyri vegna mikils rigningarveðurs og skriðuhættu.

Tankurinn er nú fullur af hreinu vatni, en biðlað er til íbúa að fara sparlega með vatn þar til nánari upplýsingar verða sendar. 

 

SMS um vatnslokun hefur verið sent til íbúa á Flateyri í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.